Indigo mun fyrst eignast 49 prósent í WOW – Gætu eignast mun stærri hlut

Indigo Partners stefnir að því að lána WOW air fjármuni til að snúa við rekstri flugfélagsins. Lánið verður í formi tíu ára skuldabréfs með breytirétti og fyrir lánveitinguna ætlar Indigo að eignast 49 prósent í WOW air.

Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, sendi bréf til skuldabréfaeigenda.
Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, sendi bréf til skuldabréfaeigenda.
Auglýsing

Fjár­fest­ing Indigo í WOW air verður aðal­lega í formi tíu ára breyti­legs láns. Árlegir vextir verða greiddir í reiðufé kjósi Indigo að inn­heimta þá. Höf­uð­stóll láns­ins og ógreiddir vextir verða greið­an­legir þegar láns­tím­anum lýk­ur.

Indigo Partners mun eign­ast 49 pró­sent í WOW air gangi áformin eft­ir. Félagið getur hins vegar eign­ast stærri hlut ef það ákveður að breyta lánum sínum í nýtt hlutafé í sam­ræmi við ákvæði þeirra á láns­tím­an­um. Þetta er meðal þess sem fram kemur í til­kynn­ingu frá Skúla Mog­en­sen, for­stjóra og eig­anda WOW air, sem birt var á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins í dag.

Þar segir enn fremur að við­ræður standi enn yfir um hvernig staða þeirra sem keyptu skulda­bréfa­flokk félags­ins í fyrra­haust verði eftir end­ur­skipu­lagn­ingu. Til greina komi að breyta kröfum þeirra í hlutafé áður en Indigo Partners ræðst í sína fjár­fest­ingu eða hvort end­ur­samið verði um skil­mála með þeim hætti að skulda­bréfa­eig­end­urnir falli frá breytirétti.

Auglýsing

Verði fjár­fest­ing Indigo Partners að veru­leika þá mun heildar fjár­fest­inga­upp­hæðin taka mið af fjár­þörf WOW air í þeim við­snún­ingi á rekstr­inum sem stefnt er að á næstu miss­er­um. Þetta sé í takt við þá lang­tíma­fjár­fest­inga­stefnu sem Indigo Partners hafi sýnt að félagið vinnur eftir þegar það hefur komið að rekstri flug­fé­laga. Það séu til að mynda 14 ár frá því að félagið fjár­festi í Wizz air, átta ár frá fjár­fest­ingu í Vol­aris og fimm ár frá því að fjár­fest var í Frontier Air­lines.

Skulda­bréfa­eig­end­urnir munu greiða atkvæði um fyr­ir­liggj­andi til­lög­ur. Þeirri atkvæða­greiðslu lýkur 17. jan­úar næst­kom­andi.

Til­kynnt var um það í lok nóv­em­ber síð­ast­lið­ins að Indigo Partners hefði náð sam­komu­lagi um fjár­fest­ingu í WOW air. 

13. des­em­ber var til­kynnt að vélum félags­ins muni fækka enn frekar, og verði í nán­ustu fram­tíð ell­efu eftir að hafa verið 24 fyrir nokkrum vikum síð­an. Fjölda­upp­sagnir eru þegar hafnar hjá WOW air og hætt hefur verið við kostn­að­ar­söm flug, meðal ann­ars til Ind­lands, en jóm­frú­ar­ferð WOW air þangað var farin í byrjun des­em­ber 2018. Sam­kvæmt til­kynn­ingu verður síð­asta flug frá Nýju Delí  20. jan­úar næst­kom­andi og frá Los Ang­eles í Banda­ríkj­unum 14. jan­úar 2019.

Þann 14. des­em­ber var birt yfir­lýs­ing á vef WOW air þar sem kom fram að fjár­fest­ing Indigo Partners í félag­inu gæti verið upp á allt að 75 millj­ónir dala, um 9,4 millj­arða króna.

Þann 20. des­em­ber var greint frá því að félagið hefði selt flug­­­tíma sína á Gatwick flug­­velli í London í kjöl­far end­­ur­­skipu­lagn­ingar á rekstri félags­­ins. Hvorki kaup­verð né kaup­andi var gefið upp sam­­kvæmt til­­kynn­ingu þar sem um trún­­að­­ar­­sam­komu­lag er að ræða.

Því mun WOW air hætta að fljúga til Gatwick frá 31. mars næst­kom­andi og eftir það fljúga ein­­göngu um Stan­­sted flug­­­völl í borg­inni. Þá hefur félagið til­­kynnt um að það muni hefja aftur flug til Edin­­borgar frá og með jún­í­mán­uði 2019.

Í byrjun þess­arar viku var greint frá því að WOW air hafi þurft að fella niður flug­­­ferðir til minnst sex flug­­valla vegna end­­ur­­skipu­lagn­ingar leiða­­kerfis og fækkun í flota. Þetta á við staði á borð við Los Ang­el­els, San Francisco, Nýju Del­í og Chicago en einnig hafa ein­staka flug til Kaup­­manna­hafn­­ar, ­­Mílanó og London verið felld nið­­ur. Ekki er vitað hversu margar ferðir hafa verið felldar niður í heild­ina.  

WOW air tap­aði alls 33,6 millj­­­­ónum dala, sem jafn­­­­­­­gildir um 4,2 millj­­­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018. Á sama tíma­bili 2017 nam tap félags­­­­ins 13,5 millj­­­­ónum dala, jafn­­­­virði tæp­­­­lega 1,7 millj­­­­arða króna miðað við núver­andi gengi. EBITDA félags­­­­ins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 millj­­­­ónir dala fyrstu níu mán­uði árs­ins 2017 í að vera nei­­­­kvæð um 18,9 millj­­­­ónir dala í fyrra, sem er um 2,3 millj­­­­arða íslenskra króna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent