Viðmiðunarverð á bensíni á Íslandi var 215,5 krónur á lítra um miðjan janúar og lækkaði um 1,3 krónur milli mánaða. Það hefur nú lækkað þrjá mánuði í röð eftir að hafa náð hæstu hæðum sem það hafði verið í í þrjú ár í október 2018, þegar lítrinn kostaði 224,3 krónur. Verðið hafði síðast náð þeirri krónutölu í júní 2015.
Þetta kemur fram í nýlega birtri Bensínvakt Kjarnans sem unnin er í samvinnu við Bensínverð.is.
Bensínverð var 8,4 prósent hærra um miðjan janúar en það var á sama tíma fyrir ári, þegar bensínlítrinn kostaði að jafnaði 198,8 krónur. Gengi krónu gagnvart Bandaríkjadal lækkaði um 10,2 prósent á árinu 2018 og heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað um tæp 12 prósent frá því um miðjan janúar 2018.
Heimsmarkaðsverð á olíu var í hæstu hæðum í október 2018. Þá var verð á hráolíu 84,16 dalir á tunnu. Það hafði ekki verið svo hátt frá því í október 2014. Verðið hrundi hins vegar næstu vikurnar á eftir og á aðfangadag jóla var 53,21 dalir á tunnu. Verðið hafði því lækkað um tæp 37 prósent á innan við þremur mánuðum.
Á sama tíma hefur viðmiðunarverð á eldneyti hérlendis lækkað um fjögur prósent. Vert er að taka fram að gengi krónu hefur einnig áhrif á útsöluverð á eldsneyti hérlendis, enda innkaupin á því í dölum. Gengi krónunnar er nú um sjö prósentum lægra en það var í október.
Hlutur ríkisins í hverjum lítra 56 prósent
Íslenska ríkið tekur til sín stóran hluta af hverjum seldum lítra af bensíni. Þannig fór 20,46 prósent af verði hans um miðjan janúar í sérstakt bensíngjald, 12,69 prósent í almennt bensíngjald og 3,83 prósent í kolefnisgjald. Þá er ótalið að 19,35 prósent söluverðs er virðisaukaskattur.
Samanlagt fór því 121,39 krónur af hverjum seldum lítra til ríkisins, eða 56,33 prósent. Hæstur fór hlutur ríkisins í 60,26 prósent í júlí 2017.
Bensínvakt Kjarnans reiknar einnig út líklegt innkaupsverð á bensíni út frá verði á lítra til afhendingar í New York í upphafi hvers mánaðar frá bandarísku orkustofnuninni EIA og miðgengi dollars gagnvart íslenskri krónu í yfirstandandi mánuði frá Seðlabanka Íslands.
Líklegt innkaupsverð í síðustu birtu Bensínvakt var 52,8 krónur á lítra.
Hlutfall olíufélaga fer hækkandi
Bensínvaktin reiknar loks út hlut olíufélags í hverjum seldum lítra sem afgangsstærð þegar búið er að greina aðra kostnaðarliði, líkt og farið er yfir hér að ofan. Hlutur olíufélaga, þ.e. álagningin sem fer í þeirra vasa, er nú að minnsta kosti 41,25 krónur á hvern seldan bensínlítra. Í maí 2017 fengu olíufélögin 41,74 krónur í sinn hlut af hverjum seldum lítra, eða nánast sömu upphæð og þau fá í krónum talið í dag.
Olíufélögin taka nú að minnsta kosti 19,14 prósent af hverjum seldum olíulítra. Það hlutfall hefur ekki verið hærra frá því í maí 2017 þegar það nam 21,3 prósentum. Það náði lægsta punkti sínum í september 2017 þegar olíufélögin fengu 11,38 prósent í sinn hlut.