Þingflokkur Pírata hefur lagt fram frumvarp að nýrri stjórnarskrá, byggða á frumvarpi stjórnlagaráðs og vinnu Alþingis í kjölfarið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flokknum, og hefur frumvarpið verið birt á vef Alþingis.
Er þetta í fyrsta skiptið sem slíkt frumvarp er lagt fram, en framlagning þess felur í sér möguleikann á að halda vinnunni við nýju stjórnarskrána áfram þar sem frá var horfið árið 2013.
Í tilkynningu frá Pírtöum er vísað til þjóðaratkvæðagreiðslunnar frá 20. október 2012, þar sem 2/3 hlutar kjósenda lögðu til að tillögur stjórnlagaráðs ættu að verða lagðar til grundvallar nýrri stjórnarskrá.
„Þrátt fyrir það hefur Alþingi enn ekki lokið við lögfestingu nýju stjórnarskrárinnar, þrátt fyrir að hafa haft til þess 2.284 daga,“ segir í tilkynningu frá Pírtöum, og er vitnað sérstaklega til fyrrnefndrar kosningar. „Það er íslenska þjóðin sjálf sem er stjórnarskrárgjafinn og hún hefur ákveðið að gefa sjálfri sér nýja stjórnarskrá. Þingmönnum og leiðtogum þjóðarinnar ber skylda til að halda áfram þeirri vinnu sem þeim var falið að vinna með þjóðaratkvæðagreiðslunni árið 2012. Þingflokkur Pírata leggur því sitt af mörkum með framlagningu uppfærðar nýrrar stjórnarskrár til að vilji íslensku þjóðarinnar verði virtur,“ segir í tilkynningunni.