Þórdís Kolbrún: Snýst ekki um skammstöfun gjaldmiðilsins heldur stöðugleikann

Rætt var um gjaldmiðlamál á Alþingi í dag, og var spurningum beint til Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur.

7DM_0698_raw_2187.JPG
Auglýsing

Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ir, ráð­herra iðn­að­ar, ferða­mála, og nýsköp­un­ar, seg­ist oft finna fyrir því í heim­sóknum sínum til nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja, að margir í þeim hópi vilji gjarnan vera með annan gjald­miðil heldur en íslensku krón­una.

Þetta kom fram í ræðu henni á Alþingi, þar sem hún veitti svör við spurn­ingum sem Albertína Frið­björg Elí­as­dótt­ir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar, beindi til henn­ar.

Þór­dís Kol­brún sagði að í hennar huga snérist verk­efnið ekki um það hver skamm­stöfun gjald­mið­ils­ins væri - ISK eða eitt­hvað annað - heldur hvernig það tæk­ist að vernda stöð­ug­leik­ann í efna­hags­líf­inu.

Auglýsing

Það væri meg­in­mál­ið, því með góðum ytri skil­yrðum í efna­hags­líf­inu þá væri hægt að vera með stöðugt rekstr­ar­um­hverfi. Hún sagði að það væri t.d. gert með opnum alþjóð­legum við­skiptum og auk­inni fram­legð, og festu í rík­is­fjár­málum og reglu­verki.

Hún sagð­ist hafa miklar vænt­ingar til vinnu við end­ur­skipu­lagn­ingu á umhverfi fyrir nýsköpun á Íslandi, og í þeirri vinnu væri meðal ann­ars horft til ákveð­innar nýsköp­un­ar, til að fá sem flest sjón­ar­mið að borð­inu.

Ekki óeðli­legt að spyrja spurn­inga

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisn­ar, beindi spurn­ingum til Þór­dísar Kol­brúnar um þriðja orku­pakk­ann svo­nefnda, en málið er vænt­an­legt inn á borð Alþingis í febr­úar næst­kom­andi. Þor­steinn spurði hvort málið væri með stuðn­ing inn í Sjálf­stæð­is­flokknum eða rík­is­stjórn­inn­i. 

Þór­dís Kol­brún svar­aði því til, að í hennar huga væri þriðji orku­pakk­inn rök­rétt fram­hald af fyrri orku­pökk­um, og að það væri ekki til­efni til að fara í ein­hverja aðra veg­ferð, varð­andi EES-­samn­ing­inn, heldur en farin hefði verið til þessa. 

Hins vegar væri umræða um málið í reynd ekki hafin í þing­inu, og hún gæti ekk­ert full­yrt um stuðn­ing við mál­ið, á meðan svo væri. Það væri eðli­legt að rök­ræða um mál, og í hennar huga væri ekk­ert óeðli­legt við að það væru uppi ólík sjón­ar­mið á þessu stigi máls­ins. 

Sjálf sagði hún málið ekki fela í sér grund­vall­ar­breyt­ing­ar, frá því sem verið hefði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent