Ferðamálastofa fær gögn um flugumferð frá Túrista.is

Sérhæfði ferðaþjónustumiðillinn Túristi.is hefur aflað upplýsinga um flugumferð sem Ferðamálastofa hefur nú fengið til afnota.

flugvél
Auglýsing

Mæla­borð ferða­þjón­ust­unnar geymir nú upp­lýs­ingar um komur og brott­farir til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli frá árs­byrjun 2018. 

Frá þessu er greint á vef Ferða­mála­stofu, en það er ferða­þjón­ustu­mið­ill­inn Túrist­i.is sem leggur gögnin til, en Krist­ján Sig­ur­jóns­son, eig­andi og rit­stjóri Túrista, hefur safnað gögn­unum saman allt frá árinu 2011.

„Ég hef allt frá árinu 2011 gert dag­legar taln­ingar á flug­ferðum til og frá Kefla­vík­ur­flug­velli og birt mán­að­ar­lega sam­an­tekt af fjölda flug­ferða. Lengst af hef ég sótt gögnin hand­virkt inn á heima­síðu Kefla­vík­ur­flug­vallar á hverjum ein­asta degi og það hefur ekki alltaf verið ein­falt að koma því við,“ segir Krist­ján Sig­ur­jóns­son, útgef­andi Túrista.

Auglýsing

Hann bætir við að núna sé hins vegar hægt að sækja þetta raf­rænt með ein­földum for­ritum og hann fagni því að Ferða­mála­stofa hafi tekið við að miðla þessum göngum á Mæla­borði ferða­þjón­ust­unn­ar. „Af þeim sökum hef ég fært þeim öll mín skjöl fyrir síð­asta ár og hlakka til að sjá þau birt­ast á Mæla­borð­in­u,“ segir Krist­ján.

„Þessi mik­il­vægu gögn flug­um­ferðar voru fengin hjá ferða­fjöl­miðl­inum Túrista og fæst nú loks í fyrsta skipti heild­stæð mynd yfir hvaða flug­fé­lög fljúga til Íslands, tíðni flug­ferða, fjöldi flug­leggja og fleira,“ segir í frétt Ferða­mála­stofu.

Gögn og upp­lýs­ingar sem verða til á Kefla­vík­ur­flug­velli eru mik­il­væg verð­mæti fyrir íslenska ferða­þjón­ustu og er Ísland í algerri sér­stöðu þegar kemur að not­anda­gildi þeirra, segir í frétt Ferða­mála­stofu. 

„T.d. hefur verið sýnt fram á að fjöldi ferða­manna frá einu landi helst í hendur við fram­boð fluga frá sama landi og er því nauð­syn­legt að upp­lýs­ingar um stað­festar og áætl­aðar brott­farir og komur á Kefla­vík­ur­flug­velli sé betur nið­ur­brot­ið, upp­fært og gefið út með reglu­bundnum hætti. Þannig væri hægt að átta sig betur á fram­boði. Aðgengið að þessum gögnum hefur verið af skornum skammti og óskaði Ferða­mála­stofa eftir þessum upp­lýs­ingum frá Isa­via seint árið 2017 og er ekki komin nið­ur­staða í þá fyr­ir­spurn,“ segir Ferða­mála­stofa.

Í lið­inni viku byrj­aði Mæla­borð ferða­þjón­ust­unnar að birta tölur um yfir­lit flug­um­ferðar um Kefla­vík­ur­flug­völl, líkt og fram kom hér á vefn­um. Töl­urnar eru sóttar á vef Isa­via en þar sem ekki hefur reynst hægt að fá tölur aftur í tím­ann frá Isa­via var leitað til ferða­fjöl­mið­ils­ins Túrista sem brást vel við og afhenti Ferða­mála­stofu gögn fyrir allt síð­asta ár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent