Persónuvernd varar við hættum sem steðja að lýðræðislegum kosningum

Persónuvernd hefur sent íslenskum stjórnvöldum bréf þar sem varað er við þeim hættum sem nú steðja að lýðræðislegum kosningum vegna samfélagmiðla.

Samfélagsmiðlar
Auglýsing

Per­sónu­vernd hefur sent íslenskum stjórn­völdum bréf þar sem þau vara við þeim hættum sem nú steðja að lýð­ræð­is­legum kosn­ingum vegna sam­fé­lag­miðla. Þetta kemur fram í frétt RÚV. 

Helga Þór­is­dótt­ir, for­stjóri Per­sónu­vernd­ar, segir í sam­tali við RÚV að í löndum Evr­ópu­sam­bands­ins sé fólk að vakna til vit­undar um mis­notkun per­sónu­upp­lýs­inga á sam­fé­lags­miðlum og þeim áhrifum sem það hefur á frjálsar kosn­ing­ar.

Í frétt­inni kemur fram að Vera Jourová, dóms­mála­ráð­herra í fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, hafi komið á fund Ervr­ópskra per­sónu­vernd­ar­for­stjóra fyrir jól og vakið athygli þeirra á þeim hættum sem steðja að lýð­ræð­inu í Evr­ópu. Helga segir að kosið verði til Evr­ópu­þings­ins í maí og einnig verði á árinu þing­kosn­ingar fjöl­mörgum þjóð­ríkjum sam­bands­ins. „­Stuttu skila­boðin sem komu frá Veru Jourová dóms­mála­ráð­herra Evr­ópu­sam­bands­ins voru þau að það verða engar kosn­ingar eins hér eft­ir,“ segir hún. 

Auglýsing

Sig­urður Emil Páls­son, for­maður Net­ör­ygg­is­ráðs, segir í sam­tali við RÚV að þetta sé hluti af mjög örri þróun nútíma­tækni. „Með þess­ari nútíma grein­ing­ar­tækni þá er hægt að búa til per­sónu snið af fólki í stór­tækara mæli en áður hefur þekkst og þar með sér­sníða með sjálf­virkum hætti upp­lýs­inga­um­hverfi sem talið er henta hverjum og ein­um.“

Er lýðræðið í hættu?

Jafn­framt kemur fram í frétt­inni að Evr­ópu­sam­bandið hafi tekið saman leið­bein­ingar um hvernig tryggja megi að kosn­ingar verði sann­gjarnar og frjáls­ar. Lagt sé til að sér­stöku ráði verði komið á fót þar sem sitja full­trúar stofn­ana sem hafa með kosn­ingar að gera. Einnig að það verði upp á borð­inu hvernig stjórn­mála­flokkar aug­lýsa á net­inu og að hverjum aug­lýs­ing­arnar bein­ast. Stjórn­völd, stjórn­mála­flokkar og fjöl­miðlar grípi til aðgerða til að verja tölvu­kerfi sín og upp­lýs­inga­kerfi fyrir hætt­um. Lög­gjöf verði hert um kostun stjórn­mála­flokka og að þeir verði sektaðir sem brjóta per­sónu­vernd­ar­lög.

Per­sónu­vernd óskar eftir því að ráð­herr­arnir hafi for­göngu um að koma á fót sam­ráðs­vett­vang allra þeirra sem koma að kosn­ingum hér á landi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent