Spá því að erlendum ferðamönnum fækki í ár

Í fyrsta sinn frá árinu 2009 mun farþegum um Keflavíkurflugvöll fækka en samkvæmt farþegaspá Isavia munu milljón færri farþegar fara um Keflavíkurflugvöll í ár heldur en í fyrra. Ennfremur er búist við 55 þúsundum færri ferðamönnum til landsins í ár.

Keflavíkurflugvöllur
Keflavíkurflugvöllur
Auglýsing

Heild­ar­fjöldi far­þega um Kefla­vík­ur­flug­völl á eftir að fækka í ár, í fyrsta sinn síðan árið 2009, sam­kvæmt nýrri far­þeg­a­spá Isa­via. Spáin gerir ráð fyrir 8,95 millj­ónir far­þega fari um Kefla­vík­ur­flug­völl á þessu ári, tæpri milljón færri en í fyrra. Einnig er gert ráð fyrir fækkun erlendra ferða­manna hér­ á landi en spáin spáir 55 ­þús­und ­færri ferða­mönnum í ár en í fyrra. 

Spá fækkun ferða­manna í fyrsta sinn frá 2009

Far­þeg­a­spáin var kynnt á morg­un­fund­i Isa­vi­a á Hilton Nor­di­a hót­eli í morg­un­. Far­þeg­a­spá­in er yfir­leitt kynnt í nóv­em­ber en var frestað ­vegna ó­vissunnar um fram­tíð WOW a­ir. 

Isa­via spái fækk­­un far­þega í fyrsta skipti frá 2009, þegar vaxt­­ar­­skeið flug­­vall­­ar­ins hóf­st, en skýr­ing­in á því er minna fram­­boð flugs en und­an­far­in ár. Far­þegar um Kefla­vík­­­ur­flug­­völl voru 9,8 millj­­ón­ir á síð­asta ári, en upp­­haf­­leg­ar spár Isa­vi­a ­gerðu ráð fyr­ir því að þeir yrðu 10,4 millj­­ón­­ir. Í ár er spáð 8,7 pró­sent fækkun milli ára en búist er við 8,95 millj­ónum far­þegar fari um flug­völl­inn í ár.

Auglýsing

Skiptifar­þeg­ar enn­þá ­stærsti far­þega­hóp­ur­inn

Á árinu 2018 voru far­þegar sem fóru um Kefla­vík­ur­flug­völl til þess að skipta um flug tæp 40 pró­sent heild­ar­far­þega­fjölda flug­vall­ar­ins eða sam­tals 3,8 millj­ón­ir. Í ár gerir spáin ráð fyrir mestri fækkun í skiptifar­þegum en talið er að þeim muni fækka um 18,7 pró­sent frá fyrra ári. Í spá­inni segir að það skýrist helst af því að áfanga­staðir munu að öllum lík­indum fækka, sem og tíðni ferða til vissra áfanga­staða. Skiptifar­þegar verða þó á­fram stærsti far­þega­hóp­ur­inn eða alls 3,1 millj­ón. 

Sam­kvæmt spánni fækkar brott­far­arfar­þegum hins vegar minna. Komu- og brott­far­arfar­þegum á að fjölga yfir sum­ar­tím­ann milli ára.  Í júní verði þeir um 4 pró­sent fleiri en á sama tíma í fyrra, þeim fjölgar um 5,7 pró­sent í júlí og að lokum um 7,2 pró­sent í ágúst. Þá gerir far­þeg­a­spáin ráð fyrir að komu- og brott­far­arfar­þegum fjölgi í nóv­em­ber um 1,7 pró­sent og í des­em­ber um 4,6 pró­sent.

Isavia - LeifsstöðIsa­vi­a ­spáir því einnig að ferðum Íslend­inga um flug­­­völl­inn fari fækk­­andi eða um 3,3 pró­sent. Auk þess muni er­­lend­um ferða­mönnum fækka um 2,4 pró­sent og verði því 55 þús­und­um færri en þeir voru árið 2018. 

„Stærstu frétt­irn­ar í spánni er þó þær að þrátt fyr­ir mikla óvissu und­an­farn­ar vik­ur þá er fækk­­un­in ekki mjög mik­il og mun árið 2019 verða svipað að stærð og árið 2017 sem talið var mjög gott ár í ferða­þjón­ust­unn­i,“ seg­ir í far­þega­­spánn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent