Ekki marktækur munur á álagningu á íbúðalán hér og á Norðurlöndunum

Kristrún Tinna Gunnarsdóttir, sem sat í starfshópnum sem skrifaði Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið, segir að sértækir skattar á banka leggist að lokum á neytendur. Hún er gestur 21 á Hringbraut í kvöld.

Kristrún Tinna Gunnarsdóttir
Auglýsing

„Við fest­umst stundum í því að hugsa að banki er bara banki. Sem er alls ekki raun­in. Maður þarf eig­in­lega að brjóta niður að banka­þjón­usta eru margir mis­mun­andi þjón­ustu­þætt­ir. Það eru íbúða­lán­in, fyr­ir­tækja­lán, greiðslu­þjón­usta og svo fram­veg­is.

Í vinn­unni skoð­unum við líka hvern og einn þess­ara flokka og hverjir eru sam­keppn­is­að­ilar á hverjir eru sam­keppn­is­að­ilar á hverjum stað fyrir sig. Þá kemur mjög skýrt í ljós þar sem sam­keppnin er mikil er álagn­ingin minni. Eins og til dæmis á íbúða­lánum þá er ekki mark­tækur munur á álagn­ingu bank­ana á Íslandi og á Norð­ur­lönd­un­um.“

Þetta segir Kristrún Tinna Gunn­ars­dótt­ir, hag­fræð­ingur hjá Oli­ver Wyman í Sví­þjóð sem sat í starfs­hópnum sem skrif­aði Hvít­bók um fram­tíð­ar­sýn fyrir fjár­mála­kerf­ið, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut annað kvöld. Þátt­ur­inn hefst klukkan 21 á fimmtu­dag og hægt er að sjá stiklu úr honum hér að neð­an:

Auglýsing



Á Íslandi hefur skap­ast sam­keppni á íbúða­lána­mark­aði á und­an­förnum árum vegna þess að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa sótt meira inn á þann mark­að. Þeir þurfa ekki að greiða ýmsa sér­tæka skatta sem bankar þurfa að greiða og hafa því getað boðið upp á mun betri kjör. Sem stendur býður Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna til að mynda sjóðs­fé­lögum sínum upp á 2,36 pró­sent verð­tryggða breyti­lega vexti á meðan að Arion banki býður sínum við­skipta­vinum upp á 4,22 pró­sent verð­tryggða breyti­lega vexti. Bank­inn býður þó upp á 80 pró­sent hámarks­lán á meðan að líf­eyr­is­sjóð­ur­inn býður upp á 70 pró­sent.

Kristrún Tinna segir að sér­tækir skattar sem lagðir séu á fjár­mála­fyr­ir­tæki hafi gríð­ar­lega mikil áhrif. „Og auð­vit­að, eins og með flesta skatta, enda þeir að lokum á neyt­end­um. Þannig að að því marki sem bank­arnir eru að keppa við líf­eyr­is­sjóði sem bera ekki slíka skatta þá auð­vitað mynd­ast ákveðnir skrýtnir hvatar í kerf­in­u.“

Í við­tal­inu ræðir Kristrún Tinna einnig ýmsa aðra anga Hvít­bók­ar­innar og sér­stak­lega þá umræðu sem sprottið hefur upp um eign­ar­hald rík­is­ins á bönk­unum í kjöl­far þess að Hvít­bókin var birt í síð­asta mán­uði. Hún ræðir einnig þær kann­anir sem starfs­hóp­ur­inn lét gera um við­horf almenn­ings til fjár­mála­kerf­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent