Þrír hafa boðið sig fram til stjórnar Iceland Seafood International og einn til varastjórnar, en framboðsfrestur rann út í dag. Því er sjálfkjörið í stjórnina en samkvæmt samþykktum félagsins er kosið í 3-5 manna stjórn á hluthafafundi félagsins.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Iceland Seafood til kauphallar.
Félagið er skráð á First North markaðinn, en tekin hefur verið ákvörðun um skráningu á aðallista kauphallarinnar.
Boðið hefur verið til hluthafafundar þriðjudaginn 5. febrúar næstkomandi.
Þau sem hafa boðið sig fram til setu í stjórn eru Liv Bergþórsdóttir, stjórnarformaður Wow air og Aur app, og fyrrverandi forstjóri Nova, Magnús Bjarnason, stofnandi og framkvæmdastjóri MAR Advisors og fyrverandi forstjóri Icelandic Group, og Jakob Valgeir Flosason, framkvæmdastjóri Jakobs Valgeirs ehf.
Í varastjórn eru Ingunn Agnes Kro, lögfræðingur og framkvæmdastjóri rekstrar og samskipta hjá Skeljungi, og Benedikt Sveinsson, sem hefur setið í stjórn ISI í níu ár og starfað hjá félaginu í yfir 40 ár í margvíslegum stjórnendastöðum, en hann gefur ekki kost á sér í nýja stjórn.
Þá mun Mark Holyoake, sem verið hefur einn stærsti hluthafi ISI undanfarin ár, ekki gefa kost á sér í áframhaldandi stjórnarsetu en hann hefur setið í stjórn félagsins frá árinu 2010.
,,Félagið stefnir að skráningu á aðallista Kauphallar Íslands á þessu ári og með kaupum ISI á Solo Seafood á síðasta ári hafa orðið töluverðar breytingar á hluthafahópi ISI. Sterkari tenging hefur orðið á milli uppruna afurða og markaða og því spennandi tímar fram undan. Það er með þakklæti í huga sem við kveðjum þá Benedikt og Mark úr stjórn ISI en með skýrri og sterkri sýn hafa þeir byggt upp ISI með þeim góða árangri eins og raun ber vitni,“ segir Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood International, en hann tók nýlega við því hlutverki.
Benedikt segist í tilkynningu kveðja félagið með nokkurri eftirsjá, en hann segir það aldrei hafa staðið sterkar.
,,Ég hef starfað hjá Iceland Seafood International og forverum þess félags í fjóra áratugi og það er því með nokkurri eftirsjá en miklu stolti sem ég kveð félagið sem aldrei hefur staðið sterkar. Í dag er Iceland Seafood þekkt alþjóðlegt fyrirtæki með sterku starfsliði sem selur gæðavörur um allan heim. Ég óska félaginu, starfsfólki og samstarfsaðilum alls hins besta á þessum spennandi tímum sem fram undan eru,” segir Benedikt.
Holyoake segist í tilkynningu hafa haft mikla ánægju af störfum sínum fyrir félagið, og að hann sé ánægður með að Bjarni Ármannsson sé nú orðinn forstjóri. Hann þakkar Benedikti sérstaklega fyrir samstarfið, og ekki síður vináttuna.
,,Það hefur verið einstaklega ánægjulegt að starfa með Iceland Seafood International frá því ég fjárfesti í félaginu árið 2010. Félagið hefur náð góðum árangri á þessum tíma sem er í dag eitt af leiðandi fyrirtækjum á sínu sviði í Evrópu. Það er ekki síst því að þakka að félagið samanstendur af frábæru starfsfólki um allan heim sem hefur verið forréttindi að vinna með. Ég er afar ánægður með að skilja við fyrirtækið í höndum Bjarna Ármannssonar, nýs forstjóra, sem ég hef mikið álit á og veit að hann hefur þá þekkingu sem þarf til að koma fyrirtækinu á næsta stig. Ég óska honum og öllu starfsfólki félagsins alls hins besta á þeim spennandi tímum sem framundan eru. Þá vil ég sérstaklega þakka Benedikt Sveinssyni, sem hættir nú eftir áratuga störf fyrir félagið en samstarfið við hann hefur verið einstaklega ánægjulegt. Leiðtogahæfni hans sem stjórnarformanns og djúp þekking hans á starfsemi félagins hefur reynst mjög dýrmæt á þessum tíma, þá er ég ekki síst þakklátur fyrir vináttu okkar,” segir Holyoake.
Hagnaður af reglulegri starfsemi fyrir skatta 2018 (e. normalized PBT for 2018) er áætlaður 6.8 til 7,3 milljónir evra, eða um 950 - 1.100 milljónir króna.