Forsætisráðherra var upplýst um yfirlýsingu Guðlaugs Þórs

Katrín Jakobsdóttir segir að utanríkisráðherra hafi látið sig og hina formenn ríkisstjórnarflokkanna vita áður en að hann tilkynnti um stuðning Íslands við að Juan Guadió verði forseti Venesúela til bráðabirgða.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra upp­lýsti for­menn allra rík­is­stjórn­ar­flokk­anna um yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér á Twitter í gær, þar sem hann lýsti því yfir að að Ísland styddi Juan Guadió sem for­seta Venes­ú­ela til bráða­birgða. Þetta kemur fram í skrif­legu svari Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið.

Þar segir að yfir­lýs­ingin hafi komið í kjöl­far sam­ráðs við önnur Norð­ur­lönd og sé sam­bæri­leg yfir­lýs­ingu sænskra og finnska stjórn­valda. „ Íslensk stjórn­völd lýsa áhyggjum af stöðu þings­ins í Venes­ú­ela og stöðu mann­rétt­inda. Með yfir­lýs­ing­unni  er verið að ítreka mik­il­vægi þess að lýð­ræð­is­legar kosn­ingar fari fram sem fyrst og lýsa yfir stuðn­ingi við að for­seti rétt­kjör­ins þjóð­þings verði for­seti lands­ins til bráða­birgða. Ísland gengur með þessu skemur en mörg ríki sem form­lega við­ur­kenna Juan Guaidó sem for­seta, eins og til dæmis Dan­mörk. Í yfir­lýs­ing­unni felst eng­inn stuðn­ingur við hót­anir ann­arra ríkja um hern­að­ar­í­hlutun í Venes­ú­ela eða önnur slík inn­grip,“ ­segir for­sæt­is­ráð­herra.

Hún segir enn fremur að utan­rík­is­ráð­herra hafi upp­lýst sig, Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Sig­urð Inga Jóhanns­son, for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins um yfir­lýs­ing­una áður en að hún var send út í gær. 

Auglýsing

Auk þess hafi Guð­laugur Þór greint sér frá því að hann hefði upp­lýst ut­an­rík­is­mála­nefnd um yfir­lýs­ing­una með tölvu­skeyti síð­degis í gær og rætt við full­trúa í nefnd­inni sím­leiðis í kjöl­far­ið. „Ut­an­rík­is­mála­nefnd var enn­fremur upp­lýst með minn­is­blaði dag­sett 25. jan­úar sl. um stöð­una í Venes­ú­ela og við­brögð umheims­ins við henn­i.“



Rósa Björk Brynj­­ólfs­dótt­ir, þing­­maður Vinstri grænna og vara­­for­­maður utan­­­rík­­is­­mála­­nefndar Alþing­is, sagði við RÚV fyrr í dag að Guð­laugur Þór hefði ekk­ert sam­ráð haft við nefnd­ina áður en hann til­­kynnti opin­ber­­lega um stuðn­­ing Íslands við leið­­toga stjórn­­­ar­and­­stöð­unnar í Venes­ú­ela. Utan­­­rík­­is­­mála­­nefnd hafi  því kallað Guð­laug Þór á fund nefnd­­ar­innar á morg­un.

Við­mæl­endur Kjarn­ans segja að nefndin hafi fengið minn­is­blað frá utan­rík­is­ráð­herra 25. jan­úar um stöð­una í Venes­ú­ela og tölvu­póst um klukkan hálf sex síð­degis í gær. Guð­laugur Þór sendi svo frá sér yfir­lýs­ing­una á Twitter klukkan tvær mín­útur í sjö síð­degis í gær og mætti nokkrum mín­útum síðar í beina útsend­ingu í fréttum RÚV.

Gegn Maduro

Venes­ú­ela er nú að upp­­lifa efna­hags­hrun, en tæp­­lega 32 millj­­ónir manna búa í land­inu. Í nýlegri umfjöllun Alþjóða­gjald­eyr­is­­sjóðs­ins, frá 25. jan­úar síð­­ast­liðnum, segir að reiknað sé með því að hrun efna­hags Venes­ú­ela eigi eftir að halda áfram á þessu ári og sam­­dráttur verða í lands­fram­­leiðslu.

Frá árinu 2013 hefur sam­­dráttur í lands­fram­­leiðslu verið um 50 pró­­sent, segir í umfjöllun AGS.

Nicolás Maduro hefur verið for­­seti í Venes­ú­ela síðan 2013, en hann var þar á undan utan­­­rík­­is­ráð­herra frá árinu 2006. Hann tók við af Hugo Chavez þegar hann lést, 5. mars 2013.

Fleiri þjóðir en Ísland hafa sett fram opin­beran stuðn­­ing við Guad­ió, þar á meðal Banda­­rík­­in, sem hafa lýst því yfir að þau telji ekki for­svar­an­­legt að vera í póli­­tísku sam­­bandi við Maduro, á meðan hann er með valda­­þræð­ina í hendi sér sem for­­seti. Banda­­ríkin hafa þegar gripið til efna­hags­þving­ana gagn­vart Venes­ú­ela.

Margar stærstu þjóðir Evr­­ópu hafa einnig gripið til þess, að lýsa yfir stuðn­­ingi við Guad­ió. Maduro hefur hins vegar enn stuðn­­ing frá ríkjum eins og Rús­s­landi, Kína, Kúbu, Tyrk­landi, N-Kóreu, Sýr­landi, Íran og Bólivíu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent