Reiknar með hugmyndafræðilegum ágreiningi um skattabreytingar hjá ríkisstjórninni

Forseti ASÍ segir að það megi finna matarholur í sköttum sem ríkið hafi afsalað sér á undanförnum árum til að borga fyrir skattalækkanir á lágtekjuhópa. Hún er gestur 21 á Hringbraut í kvöld.

Drífa Snædal
Auglýsing

„Ég ætla að vera von­góð þangað til að annað kemur í ljós. Þessi rík­is­stjórn hefur sagt að það þurfi að breyta skatt­kerf­inu til þess að létta sköttum af þeim lægst laun­uðu. Þannig að það er skref í átt­ina.“

Þetta segir Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut klukkan 21:00 í kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.





ASÍ lagði nýverið fram umfangs­miklar skatta­til­lögur sem inn­legg í kjara­við­ræð­ur. Í þeim felst að sett verði á fjögur skatt­þrep, lagður verði á hátekju­skatt­ur, tek­inn verði upp að nýju auð­legð­ar­skattur og skatta­eft­ir­lit aukið veru­lega til að fjár­magna þessar til­lög­ur.

Drífa seg­ist ánægð með að ASÍ sé búið að setja út sínar skatta­til­lögur en að hún hafi ekki séð hverjar skatta­til­lögur stjórn­valda séu.„En ég reikna með að það sé hug­mynda­fræði­legur ágrein­ingur innan stjórn­valda, innan rík­is­stjórn­ar­inn­ar.“

Auglýsing
Vinstri græn, sem leiða sitj­andi rík­is­stjórn, hafa verið með þrepa­skipt skatt­kerfi á stefnu­skrá sinni fyrir síð­ustu kosn­ing­ar. Í stefnu flokks­ins segir m.a. að eðli­legt sé að inn­leiða lágan auð­legð­ar­skatt og þrepa­skiptan fjár­magnstekju­skatt. Auk þess sé eðli­legt að „hafa þrepa­skiptan tekju­skatt og að ofur­tekjur séu skatt­lagðar meira en lægri tekjur og venju­legar launa­tekj­ur. Tryggja þarf aukið jafn­ræði með því að loka leiðum til að fela tekjur og einka­neyslu í einka­hluta­fé­lög­um.“

Í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2016 setti Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, eft­ir­far­andi færslu á Twitt­er.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­mála­ráð­herra, hefur hins vegar gagn­rýnt til­lögur ASÍ um þrepa­skipt skatt­kerfi og sagt að þær muni leiða til þess að skatt­­byrði hækki á með­­al­­tekjur og jað­­ar­skatt­ar ­auk­ist. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur þá yfir­lýstu stefnu í skatta­málum að lækka skatta og ein­falda skatt­kerf­ið.

Drífa segir að Bjarni sé að lesa rangt út úr til­lögum ASÍ. „Við erum ekki að leggja til að milli­tekju­hóp­ur­inn greiði skatta­lækk­anir fyrir lág­tekju­hóp­inn heldur viljum við vernda milli­tekju­hóp­inn líka. Það nátt­úru­lega kostar pen­ing­ar. Það að breyta skatt­kerf­inu, þá erum við að fara að hreyfa við tug millj­örð­um. En við hins vegar bendum líka á það að rík­is­stjórnin hefur afsalað sér mik­il­vægum tekju­stofnum síð­ustu ár. Auð­legð­ar­skatt­in­um, með þvi að afnema milli­þrep á skatt­in­um. það eru mat­ar­holur sem hægt er að finna.“

Drífa nefnir einnig auð­linda­gjöld, ekki ein­ungis á sjáv­ar­út­veg líkt og verið hefur heldur líka á ferða­þjón­ustu. „Við erum ekki endi­lega að tala út frá þeirri stöðu sem er í dag varð­andi tekju­öfl­un, heldur eru leiðir til frek­ari tekju­öfl­un­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent