Dagur: Þurfum að fara yfir málið og „draga lærdóm af“

Borgarstjóri segir að fara þurfi yfir verkefnið sem miðaði að því að auka kosningaþátttöku. Persónuvernd gagnrýndi framkvæmdina og segir hana ekki samrýmast lögum.

Dagur B. Eggertsson - Sveitarstjórnarkosningar 2018
Auglýsing

Reykja­vík­ur­borg og aðrir sem komu að verk­efn­inu sem mið­aði að því að auka kosn­inga­þátt­töku, verða að draga lær­dóm af því og rýna í það sem aflaga fór. 

Þetta kemur fram í frétta­bréfi Dags B. Egg­erts­son­ar, borg­ar­stjóra, en þar gerir hann að umtals­efni ákvörðun Per­sónu­verndar er varðar skila­bða­send­ingar í aðdrag­anda kosn­inga.

Reykja­vík­­­ur­­borg og rann­sak­endur við Háskóla Ís­lands­ not­uðu per­­són­u­­upp­­lýs­ingar frá Þjóð­­skrá Íslands­­ um unga kjós­­end­­ur, erlenda rík­­is­­borg­­ara og konur 80 ára og eldri til að senda þeim skila­­boð og bréf fyrir sveita­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­­arnar í maí 2018, með að það fyrir augum að auka kjör­­sókn þess­­ara hópa. 

Auglýsing

Í ákvörðun Per­­són­u­verndar sem birt var í gær kemur fram að notkun og vinnsla Reykja­vík­­­ur­­borgar og ­rann­sak­anda við Háskóla Ísalnds hafi ekki í sam­ræmi við lög um per­­són­u­vernd. Að mati Per­­són­u­verndar voru skila­­boð í þessum send­ingum gild­is­hlaðin og til þess fallin að hafa áhrif á hegðun þess­­ara kjós­­enda í kosn­­ing­un­­um.  

Í frétta­bréf­inu segir Dagur um þetta:  „Í dag hafa birst fréttir af því að Per­sónu­vernd telji Reykja­vík­ur­borg, Þjóð­skrá og Háskóla Íslands ekki hafa farið að lögum um per­sónu­vernd við fram­kvæmd eins þeirra verk­efna sem efnt var til í því skyni að auka kosn­inga­þátt­töku í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­anna sl vor. Verk­efnið sem um ræðir var eitt af þeim sem borg­ar­ráð sam­ein­að­ist um að efna til með sam­þykkt til­lagna sem hópur sér­fræð­inga hafði unn­ið. Til­lög­unum var öllum ætlað að stuðla að auk­inni kosn­inga­þátt­töku, á einn eða annan hátt. Nið­ur­staða Per­sónu­verndar lítur meðal ann­ars að rann­sókn­ar­hluta verk­efn­is­ins en fræði­menn við Háskóla Íslands lögðu upp rann­sókn í sam­vinnu við borg­ina til að kanna hvort hvatn­ing til að kjósa hefði áhrif á ungt fólk, og hvort mis­mun­andi orðuð hvatn­ing hefði mis­mikil áhrif. Fyrir liggur að rann­sóknin hafði fengið sam­þykki Vís­inda­siða­nefndar Háskóla Íslands. Reykja­vík­ur­borg mun í kjöl­far nið­ur­stöðu Per­sónu­verndar fara yfir úrskurð­inn með sam­starfs­að­ilum í verk­efn­inu og draga lær­dóm af. Í þeirri yfir­ferð þarf m.a. að skoða hvernig fram­kvæmd okkar er frá­brugðin fram­kvæmd sam­bæri­legra verk­efna á Norð­ur­lönd­un­um, sem m.a. var horft til sem fyr­ir­myndar í verk­efn­inu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent