„Erum með allt niðrum okkur“ í aðgerðum gegn mansali

Forseti ASÍ segir að grípa þurfi til nokkurra vel skilgreindra aðgerða til að berjast gegn félagslegri brotastarfsemi sem þrífst á Íslandi.

Drífa Snædal
Auglýsing

„Annað er aðgerð­ar­á­ætlun gegn man­sali. Við erum nátt­úru­lega að þver­brjóta alla alþjóða­samn­inga með því að hafa hundsað það. Síð­asta aðgerð­ar­á­ætlun var í gangi 2013-2016 og hún var aldrei fjár­mögnuð og aldrei virk. Þannig að við erum með allt niðrum okkur þar.“

Þetta sagði Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Þar ræddi hún meðal ann­ars félags­lega brota­starf­semi sem fyr­ir­finnst á Íslandi og aðgerðir sem grípa þarf til svo að hægt sé að vinna gegn henni.

Auglýsing
Drífa segir að það séu nokkur atriði sem skipti þar mjög miklu máli sem snúa að aðbún­aði verka­fólks og aðstöðu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar til að bregð­ast við aðstæðum sem séu ekki í lag­i.„Þar erum við að tala um að stöðva kenni­tölu­flakk þannig að þú getir ekki bara stofnað nýja og nýja og nýja kenni­tölu og sest í stjórnir fyr­ir­tækja aftur og aftur og aft­ur. Það eru ákveðnir aðilar sem virð­ast hafa þetta sem sitt aðal­starf. Að setj­ast í stjórnir fyr­ir­tækja, skræla þau að innan og setja þau í þrot og skilja fólk eftir launa­laust og í við­kvæmri stöð­u.“

Hún segir að þessi brota­starf­semi sé líka afar dýr sam­fé­lag­inu og að nauð­syn­legt sé, líkt og ASÍ hafi lagt til í skatta­til­lögum sín­um, að efla skatta­eft­ir­lit umtals­vert.

Annað atriði sé inn­leið­ing keðju­á­byrgðar sem nái neðan frá og upp. „Sem þýðir að ef þú ert vinn­andi mann­eskja, það er svínað á þér, þá getur þú sótt rétt þinn upp alla keðj­una.“

Drífa ræðir einnig kjara­samn­ings­við­ræð­ur, hús­næð­is­mál, stétta­skipt­ingu og hug­mynda­fræði­legan ágrein­ing innan rík­is­stjórn­ar­innar í þætt­in­um. Hægt er að sjá stiklu úr honum hér að neð­an.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent