Skýr stéttaskipting milli þeirra sem eiga og þeirra sem leigja

Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, segir að jöfnunartæki stjórnvalda séu ofboðslega mikilvæg til þess að leysa úr þeirri stéttaskiptingu sem er milli þeirra sem eiga fasteign og hinna sem eiga ekki slíka.

Drífa Snædal
Auglýsing

„Það er bara skýr stétta­skipt­ing þarna, milli þeirra sem eiga og þeirra sem leigja. Þetta er líka kyn­slóð­ar­mál, hvernig komum við okkur unga fólk­inu inn á örugg­ari hús­næð­is­mark­að.“

Þetta sagði Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut síð­ast­liðið mið­viku­dags­kvöld. Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.

Drífa segir að það það sem hafi verið hefur ein­kenni okkar á Íslandi sé að við höfum ein­beitt okkur mjög mikið að sér­eign­ar­stefnu í hús­næð­is­málum en nú séum við síðan að ham­ast við að byggja upp ein­hvers­konar sann­gjarnan leigu­markað til þess að fólk geti verið í leigu­hús­næði jafn­vel á meðan að það safnar sér upp í íbúð og kom­ist að heim­an. „Þetta er hags­muna­mál fyrir okkur öll að börnin okkar fari að heiman ein­hvern tím­ann.“

Auglýsing
Aðspurð hvort að þeirri til­raun, að láta mark­að­inn leysa hús­næð­is­vand­ann, sé lokið segir Drífa svo vera. „Við erum á þeim tíma­punkti núna að það er að renna upp fyrir okkur að mark­að­ur­inn mun ekki leysa hús­næð­is­vand­ann. Það að vera með hagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög, að ætla að græða á hús­næð­is­mark­að­in­um, er módel sem gengur ekki upp. Þetta hefur ekki gengið upp í langan tíma vegna þess að það gengur nátt­úru­lega ekk­ert upp að fólk sé að greiða upp í 80 pró­sent af tekj­unum sínum í leigu. Fólk hefur gert það engu að síð­ur. Ég veit ekki alveg hvernig fólk fer að því. En þetta er auð­vitað eitt­hvað sem gengur ekki til lengd­ar.“

Hún segir aðkomu stjórn­valda að yfir­stand­andi kjara­við­ræðum vera afskap­lega brýna, en krafa hefur verið uppi um að þau komi með breyt­ingar á skatt­kerfi og milli­færslum að borð­inu auk sér­tækra lausna fyrir hús­næð­is­mark­að­inn. 

Drífa segir að að jöfn­un­ar­tæki stjórn­valda til þess að létta fólkið lífið sé ein­fald­lega svo ofboðs­lega mik­il­vægt. „Við erum kannski með mann­eskju sem er með 700 þús­und á mán­uði. Ef þú átt skuld­lausa eign þá ert þú bara sæmi­lega settur þannig, ég tala nú ekki um ef að þú ert í sam­búð og búin að koma börn­unum á legg. Svo ertu með mann­eskju með 700 þús­und sem er á leigu­mark­aði ,ein­stæð, þarf að greiða 250 þús­und í leigu. Hún er kannski ekk­ert sér­stak­lega vel sett. Þau börn hafa kannski ekki tök á því að fara í tón­list­ar­nám og íþrótt­ir.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent