Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sakar bankaráð Landsbankans um taktleysi, vegna ákvörðunar um að hækka laun bankastjórans í tvígang á innan við ári. Laun bankastjóra auk bifreiðahlunnanda hafa hækkað um tæp 82 prósent eftir að þau færðust undan kjararáði þann 1. júlí 2017. Halldóri Benjamín segir að launahækkanirnar séu þvert á vilja eigenda bankans, sem sé í eigu ríkisins og standist ekki viðmið á vinnumarkaði. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
Í senn óskynsamleg og óverjandi ákvörðun
Laun Lilju Bjarkar Einarsdóttur, bankastjóra Landsbankans, voru hækkuð um 1.200.000 krónur þann 1. júlí 2017 og um 550.000 krónur í apríl 2018, að því er Fréttablaðið greindi frá um helgina. Laun bankastjóra hækkað um 140 prósent á fjórum árum, sem er fjórum sinnum meiri hækkun en hjá almennri launavísitölu. Bankastjórinn er nú með 3,8 milljónir króna í laun á mánuði.
Halldór segir að hækkanir sem þessar séu undantekning frekar en regla hjá stærstu fyrirtækjum landsins en það geri hvorki lítið úr alvarleika málsins né þeim dómgreindarbresti sem ákvörðun um hækkanirnar feli í sér. „Að þetta gerist hjá banka í eigu ríkisins gengur þvert á vilja eiganda bankans og er í senn óskynsamleg og óverjandi ákvörðun að mínu mati. Hækkunartakturinn stenst enga skoðun eða viðmið á vinnumarkaði. Til allrar hamingju er þetta undantekning frekar en regla hjá stærstu fyrirtækjum landsins. Það gerir hins vegar hvorki lítið úr alvarleika málsins né þeim dómgreindarbresti sem birtist í þessari ákvörðun,“ segir Halldór í samtali við Fréttablaðið.
Hann segir að fréttirnar af launahækkuninni séu slæmar en þær skapi þó ekki svigrúm. „Svigrúm fyrirtækja til að hækka laun á almennum vinnumarkaði ræðst auðvitað ekki af ákvörðunum um laun landsbankastjóra sem SA hefur enga aðkomu að. Langflest fyrirtæki á Íslandi eru lítil og meðalstór og aðstæður hafa farið versnandi í hagkerfinu. Efnahagsuppsveiflunni er lokið og kjarasamningar verða að taka mið af þeirri efnahagslegu staðreynd. SA hafa á undanförnum árum hvatt til þess að launahækkanir stjórnenda væru í takti við aðrar hækkanir sem almennt hafa verið.“