Segir launahækkun bankastjóra vera óverjandi ákvörðun

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, gagnrýnir harðlega þá ákvörðun bankaráðs Landsbankans að hækka laun bankastjóra síns verulega í tvígang með stuttu millibili.

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Auglýsing

Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins, sakar banka­ráð Lands­bank­ans um takt­leysi, vegna ákvörð­unar um að hækka laun banka­stjór­ans í tvígang á innan við ári. ­Laun ­banka­stjóra auk bif­reiða­hlunn­anda hafa hækkað um tæp 82 pró­sent eftir að þau færð­ust undan kjara­ráði þann 1. júlí 2017. Hall­dóri Benja­mín segir að launa­hækk­an­irnar séu þvert á vilja eig­enda bank­ans, sem sé í eigu rík­is­ins og stand­ist ekki við­mið á vinnu­mark­aði. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag. 

Í senn óskyn­sam­leg og óverj­andi ákvörðun

­Laun Lilju Bjarkar Ein­ars­dótt­ur, banka­stjóra Lands­bank­ans, voru hækkuð um 1.200.000 krónur þann 1. júlí 2017 og um 550.000 krónur í apríl 2018, að því er Frétta­blaðið greindi frá um helg­ina.  Laun banka­stjóra hækkað um 140 pró­­sent á fjórum árum, sem er fjórum sinnum meiri hækkun en hjá almennri launa­­vísi­­tölu. ­Banka­stjór­inn er nú með 3,8 millj­ónir króna í laun á mán­uði.

Hall­dór segir að hækk­anir sem þess­ar ­séu und­an­tekn­ing frekar en regla hjá stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins en það ­geri hvorki lítið úr alvar­leika máls­ins né þeim dóm­greind­ar­bresti sem ákvörðun um hækk­an­irn­ar ­feli í sér­. „Að þetta ger­ist hjá banka í eigu rík­is­ins gengur þvert á vilja eig­anda bank­ans og er í senn óskyn­sam­leg og óverj­andi ákvörðun að mínu mati. Hækk­un­ar­takt­ur­inn stenst enga skoðun eða við­mið á vinnu­mark­aði. Til allrar ham­ingju er þetta und­an­tekn­ing frekar en regla hjá stærstu fyr­ir­tækjum lands­ins. Það gerir hins vegar hvorki lítið úr alvar­leika máls­ins né þeim dóm­greind­ar­bresti sem birt­ist í þess­ari ákvörð­un,“ segir Hall­dór í sam­tali við Fréttablaðið.

Auglýsing

Hann segir að frétt­irnar af launa­hækk­un­inni séu slæmar en þær skapi þó ekki svig­rúm. „Svig­rúm fyr­ir­tækja til að hækka laun á almennum vinnu­mark­aði ræðst auð­vitað ekki af ákvörð­unum um laun lands­banka­stjóra sem SA hefur enga aðkomu að. Lang­flest fyr­ir­tæki á Íslandi eru lítil og með­al­stór og aðstæður hafa farið versn­andi í hag­kerf­inu. Efna­hags­upp­sveifl­unni er lokið og kjara­samn­ingar verða að taka mið af þeirri efna­hags­legu stað­reynd. SA hafa á und­an­förnum árum hvatt til þess að launa­hækk­anir stjórn­enda væru í takti við aðrar hækk­anir sem almennt hafa ver­ið.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent