Ugla Hauksdóttir og SNARK framleiðslufyrirtæki, hafa hafið samstarf í tengslum við auglýsingaframleiðslu, en þetta kemur fram í tilkynningu frá SNARK.
Ugla Hauksdóttir hefur verið áberandi hér á landi undanfarin misseri eftir útskrift hennar úr Columbia háskólanum í Bandaríkjunum.
Ugla var valin besti kvenleikstjórinn af Directors Guild of America fyrir stuttmyndina “How far she went”.
Auk þess hefur Ugla leikstýrt tónlistarmyndböndum sem hafa hlotið mikið lof fyrir fagurfræði og stíleinkenni, að því er segir í tilkynningu.
„Undanfarið hefur Ugla einnig starfað á Íslandi. Hún nýkominn frá því að leikstýra í þáttaröðinni Ófærð 2 sem er í sýningu á RÚV. Nú stefnir Ugla á að vinna með íslenskum fyrirtækjum í auglýsingagerð og verður í samstarfi með SNARK framleiðslufyrirtæki sem hefur verið áberandi í íslenskri auglýsingaframleiðslu um nokkurt skeið. „Ég hef hugsað til íslenska auglýsingamarkaðsins í nokkurn tíma núna og er mjög spennt að vinna með íslenskum fyrirtækjum í þeirra herferðum,” segir Ugla.
„Við höfum fylgst með Uglu lengi og það er útséð að Ugla er ein af hæfileikaríkustu leikstjórum í dag, og við hlökkum mikið til komandi missera,” segir Ólafur Páll framkvæmdastjóri SNARK.
Snark er framleiðslufyrirtæki sem var stofnað árið 2013 og hafa verkefni
þeirra hlotið viðurkenningar innanlands sem utan.