Bjarni segist mjög óhress með launahækkanir

Bjarni Benediktsson ætlast til þess að stjórnir ríkisfyrirtækja beri skynbragð á það sem er að gerast í samfélaginu og segir ekki annað að sjá en að tilmæli um að sýna hófsemd í launahækkunum ríkisforstjóra hafi verið höfð að engu.

Bjarni Benediktsson- Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, seg­ist mjög óhress með þær launa­hækk­anir sem átt hafa sér stað hjá hluta for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja og er sam­mála þeirri gagn­rýni sem sett hefur verið fram um að þær séu takt­laus­ar. „Það er ekki annað að sjá en að þau til­mæli sem send voru á sínum tíma, í upp­hafi árs 2017, hafi verið höfð að eng­u.“

Þetta sagði Bjarni í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morg­un. Hann sagði enn fremur að stjórn­ar­menn í rík­is­fyr­ir­tækjum á Íslandi væru þátt­tak­endur í sam­fé­lagi þar sem ætti sér stað bar­átta um að koma í veg fyrir of mikla gliðnun milli launa þeirra sem berj­ast fyrir betri kjörum og þeirra sem stýra rík­is­fyr­ir­tækj­um. „Aðal­at­riði í þessu öllu er að við ætl­umst til þess að menn séu að ganga í takt og beri eitt­hvað skyn­bragð á því sem er að ger­ast í sam­fé­lag­in­u.“ Bjarni úti­lokar ekki að grípa við aðgerða vegna máls­ins en sagði eðli­legt að gefa stjórnum rík­is­fyr­ir­tækja og Banka­sýslu rík­is­ins færi á að svara fyrir sig fyrst.

Til­mælin sem Bjarni vísar til komu frá Bene­dikt Jóhann­essyni, þá fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í jan­úar 2017, eftir að ákveðið hafði verið með laga­breyt­ingu að færa for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja undan kjara­ráði frá og með 1. júní það ár. Bene­dikt beindi því til stjórna allra rík­is­fyr­ir­tækja að sýna hóf­semi í launa­hækk­un­um. Við því hafa fæstar þeirra orð­ið.

Auglýsing
Laun rík­is­for­stjóra urðu aftur að meg­in­efni í umræð­unni í byrjun viku þegar greint var frá því að laun Lilju Bjarkar Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóra Lands­bank­ans, hefðu verið hækkuð í 3,8 millj­ónir króna á mán­uði, sem þýðir að laun hennar hafa hækkað um 82 pró­sent á um tveimur árum.

Fjöl­margar aðrar launa­hækk­anir

Þetta er ekki eina launa­hækkun rík­is­for­stjóra frá því að ákvörðun um launa­kjör þeirra voru færð frá Kjara­ráði og yfir til stjórna fyr­ir­tækj­anna. Laun útvarps­stjóra hækk­uðu um 16 pró­­­sent í 1,8 millj­­­ónir króna á mán­uði, laun for­­­stjóra Isa­via um 20 pró­­­sent í 2,1 millj­­­ónir króna á mán­uði, laun for­­­stjóra Lands­­­virkj­unar um 32 pró­­­sent upp í 2,7 millj­­­ónir króna á mán­uði, laun for­­­stjóra Íslands­­­­­pósts um 17,6 pró­­­sent í 1,7 millj­­­ónir króna á mán­uði og laun for­­­stjóra Lands­­­nets um tíu pró­­­sent í 1,8 millj­­­ónir króna á mán­uði.

Birna Ein­­ar­s­dótt­ir, banka­­stjóri Íslands­­­banka, hefur einnig haft mjög góð laun, en hún var með 4,8 millj­­ónir króna í laun og árang­­urstengdar greiðslur á árinu 2017. Í fyrra­dag sendi Íslands­­­banki frá sér til­­kynn­ingu þar sem fram kom að Birna hefði óskað eftir því í nóv­­em­ber síð­­ast­liðnum að laun hennar yrðu lækkuð og að þau séu nú 4,2 millj­­ónir króna á mán­uði. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarn­inn hefur aflað tók sú launa­lækkun gildi 1. jan­úar 2019 og heild­ar­laun Birnu á síð­asta ári lækk­uðu því ekki frá því sem þau voru 2017. Íslands­banki mun birta árs­reikn­ing sinn fyrir árið 2018 í dag, mið­viku­dag, og þar verður birt sund­ur­liðun á launum Birnu.

Fengu skýr fyr­ir­mæli

Bjarni sagði við Morg­un­út­varpið að hann hafi litið svo á að stjórnir rík­is­fyr­ir­tækja hefðu fengið skýr fyr­ir­mæli auk þess sem þeir bar að gæta að laga­skyldu við ákvörðun launa for­stjóra. Hann sendi í gær bréf til stjórna allra rík­is­fyr­ir­tækja og Banka­sýslu rík­is­ins, sem fer með eign­ar­hald rík­is­ins í Lands­bank­anum og Íslands­banka, þar sem hann óskaði eftir upp­lýs­ingum um það hvernig hefði verið farið eftir til­mælum Bene­dikts á sínum tíma og þau höfð til hlið­­sjónar við ákvörðun launa for­stjóra. „Hafi stjórnir ákvarðað fram­­kvæmda­­stjórum launa­hækk­­­anir umfram almenna launa­­þró­un, er óskað eftir því að þær færi rök fyrir þeim ákvörð­unum með til­­vís­unar til eig­anda­­stefn­u.“

Bjarni sagði sann­gjarnt og eðli­legt að gefa stjórn­unum tæki­færi á því að skýra mál sitt og þess vegna hefði hann sent bréf­ið.  „Þetta er samt sem áður þannig að það þarf að skoða hvert og eitt til­vik varð­andi breyt­ing­arn­ar.“ Hinar miklu hækk­anir á launum for­stjóra skýrist í ein­hverjum til­fellum af því að í gildi var ráðn­ing­ar­samn­ingur frá fyrri tíma, eða áður en að allir rík­is­for­stjórar voru felldir undir Kjara­ráð í for­sæt­is­ráð­herra­tíð Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur og það við­mið sett að eng­inn þeirra ætti að vera með hærri laun en for­sæt­is­ráð­herra. Bjarni sagði einnig mik­il­vægt að skoða launa­þróun rík­is­for­stjór­anna yfir lengra tíma­bil en gert hefur verið í umræð­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent