Höskuldur: Afkoman fyrir árið í heild undir væntingum

Þrátt fyrir 7,8 milljarða hagnað Arion banka í fyrra segir bankastjórinn, Höskuldur Ólafsson, að afkoman fyrir árið 2018 hafi valdið vonbrigðum.

Höskuldur Ólafsson
Auglýsing

Hagn­aður sam­stæðu Arion banka á fjórða árs­fjórð­ungi 2018 nam 1,6 millj­arði króna sam­an­borið við 4,1 millj­arðs króna tap á sama tíma­bili 2017, og var hagn­að­ur­inn á árinu 2018 7,8 millj­arðar króna. Á árinu 2017 var hagn­að­ur­inn hins vegar 14,4 millj­arð­ar. 

„Af­koma Arion banka á fjórða árs­fjórð­ungi var undir vænt­ingum og sama má segja um árið í heild. Við sjáum hins vegar jákvæða þróun í grunn­starf­semi bank­ans og það er ánægju­legt að sjá að vaxta­munur hækkar á fjórða árs­fjórð­ungi í sam­ræmi við mark­mið okk­ar. Erf­iðar aðstæður á hluta- og skulda­bréfa­mörk­uðum og ekki síst hrær­ingar í flug­rekstri settu mark sitt á starf­sem­ina, bæði á fjórð­ungnum og á árinu í heild. Eitt helsta verk­efni þessa árs verður að auka arð­semi í rekstri bank­ans og hafa ýmis verk­efni verðið sett í gang með það að mark­miði. Það er engu síður ljóst að það er erfitt verk­efni að ná við­un­andi arð­semi án umtals­verðra hækk­ana á útlána­vöxtum þegar rík­is­valdið við­heldur ofur­sköttum á banka­kerfið og eft­ir­lits­að­ilar bæta við eig­in­fjár­kröfum og öðrum álög­um,“ segir Hösk­uldur Ólafs­son, banka­stjóri Arion banka, í til­kynn­ingu til kaup­hall­ar.

Arð­semi eigin fjár var 3,2 pró­sent á fjórða árs­fjórð­ungi 2018 sam­an­borið við 7,3 pró­sent á sama tíma­bili árið 2017, en það telst fremur lág arð­semi í banka­rekstri. Arð­semi var 3,7 pró­sent sam­an­borið við 6,6 pró­sent arð­semi á árinu 2017. 

Auglýsing

Mark­aðsvirði bank­ans, sem skráður er tví­hliða á íslenska og sænska Nas­daq mark­að­inn, er nú 154 millj­arðar en eigið fé Arion banka var 200,9 millj­arðar í lok árs. Það þýðir að mark­aðsvirði bank­ans er nú 76 pró­sent af eigin fé hans.

Stjórn bank­ans leggur til að tíu millj­arða króna arður verði greiddur eða sem sam­svarar 5 krónum á hlut. Arð­greiðslan er liður í áfram­hald­andi hag­ræð­ingu á sam­setn­ingu eigin fjár bank­ans, segir í til­kynn­ingu.

Heild­ar­eignir námu 1.164,3 millj­örðum króna í árs­lok 2018 sam­an­borið við 1.147,8 millj­arða króna í árs­lok 2017. 

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans var 22,0% í árs­lok 2018 en var 24,0% í árs­lok 2017. Hlut­fall almenns eig­in­fjár­þáttar 1 nam 21,2% í árs­lok, sam­an­borið við 23.6% í árs­lok 2017. 

Hösk­uldur segir í til­kynn­ingu að unnið sé að sölu á Valitor í sam­starfi við Citi bank­ann, en búist er við því að tíð­indi ber­ist af þeirri vinnu á þessu ári.

Þá minn­ist Hösk­uldur enn fremur á það, að Arion banki hafi verið mark­aðs­fyr­ir­tæki árs­ins á árinu 2018, og náð frek­ari fót­festu með vörur sínar og þjón­ustu, ekki síst í gegnum staf­rænar leið­ir. „Í raun er svo komið að staf­rænu lausn­irnar okkar vekja athygli út fyrir land­stein­ana en bank­inn fékk tvenn alþjóð­leg verð­laun fyrir þær í des­em­ber. Við höfum nú á rúmum tveimur árum kynnt um 20 nýjar staf­rænar lausnir og hefur úti­búa­net bank­ans tekið breyt­ingum í takt við vin­sældir þess­ara nýju lausna. Á fjórð­ungnum opn­uðum við tvær nýjar afgreiðslur sem taka mið af staf­rænni þjón­ustu og nýta mun minna hús­næði en eldri útbú, alls fækk­aði fer­metrum sem úti­búin okkar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nýta um tæp 40% á árinu. Það gefur auga­leið að þessi þróun hefur áhrif á hvernig við vinn­um, hefur aukið skil­virkni í okkar störfum og þjón­ustu, en ekki síður hefur hún áhrif á hvernig við­skipta­vinir sækja sér fjár­mála­þjón­ustu. Í dag gera þeir það í 97% til­fella í gegnum staf­rænar leið­ir, eins og app­ið, net­bank­ann og vef bank­ans og jókst staf­ræn sala um 125% ár árin­u,“ segir Hösk­uld­ur. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent