Erlendir fjárfestar halda áfram að kaupa í Marel

Fyrirhuguð skráning félagsins - annaðhvort í Amsterdam eða Kaupmannahöfn - er handan við hornið.

Marel Mynd: Marel
Auglýsing

Gengi bréfa í Marel hélt áfram að hækka í dag í við­skiptum upp á 1,8 millj­arða króna. 

Erlendir fjár­festar hafa sýnt félag­inu mik­inn áhuga að und­an­förnu, en senn líður að því ákveðið verði hvar félagið mun verða tví­skráð í erlenda kaup­höll, en til greina koma kaup­höllin í Amster­dam og Nas­daq kaup­höllin í Kaup­manna­höfn. 

Aðal­fundur félags­ins fer fram 6. mars næst­kom­andi í höf­uð­stöðvum félags­ins í Aust­ur­hruni í Garða­bæ. 

Auglýsing

Mark­aðsvirði félags­ins hefur hækkað hratt að und­an­förnu, og er það nú 303,5 millj­arðar króna og gengi bréfa félags­ins 445. Á und­an­förnum mán­uði hefur gengið hækkað um tæp­lega 15 pró­sent og um tæp­lega 23 pró­sent sé horft yfir tólf mán­aða tíma­bil. 

Stærsti ein­staki eig­and­inn er Eyrir Invest með 27,9 pró­sent hlut. Virði hans nemur nú um 84,6 millj­örðum króna. 

Stærstu eig­endur félags­ins stofn­endur félags­ins, feðgarnir Árni Oddur Þórð­ar­son, for­stjóri Mar­el, og Þórður Magn­ús­son, með um 35 pró­sent hlut. Þórður á 19 pró­sent hlut en Árni Oddur 16 pró­sent.

Eyrir Invest keypti 9,2 pró­sent hlut í félag­inu sjálfu af Lands­bank­anum í des­em­ber í fyrra fyrir 3,8 millj­arða króna. Íslenska ríkið á 98,2 pró­sent hlut í Lands­bank­anum og bank­inn á síðan 1,5 pró­sent hlut af eigin bréf­um. Ríkið fer því með nær allt hlutafé í bank­an­um, fyrir utan um 0,3 pró­sent hlut sem skipt­ist að mestu á milli starfs­manna Lands­bank­ans og fyrrum starfs­manna.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel.

Heild­ar­virði félags­ins, miðað við það verð sem fékkst fyrir hlut­inn þegar Eyrir keypti, var því áætlað 41 millj­arður króna. Sé mið tekið af mik­illi hækkun á virði helstu eignar félags­ins, sem er fyrr­nefndur hlutur í Mar­el, hefur virði félags­ins auk­ist umtals­vert und­an­farin miss­er­i. 

Lands­bank­inn fer enn með 12,8 pró­sent hlut í félag­inu en til­kynnt var um það 30. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að Hreiðar Bjarna­son, fjár­mála­stjóri Lands­bank­ans, myndi stíga úr stjórn Eyris Invest, en hann hafði verið í stjórn félags­ins frá því í maí 2017 ásamt Jóni Helga Guð­munds­syni, Ingólfi Guð­munds­syni, Ásu Ólafs­dótt­ur, Sig­ur­jóni Jóns­syni, Ólafi S. Guð­munds­syni og Þórði Magn­ús­syni, eins og fyrr seg­ir. 

Íslenskir hlut­hafar eiga Marel að lang­sam­lega stærstum hluta, en áhugi erlendra fjár­festa hefur auk­ist veru­lega á félag­inu, ekki síst eftir að ljóst varð að félagið stefni að form­legri skrán­ingu í erlenda kaup­höll. Fjallað var ítar­lega um þennan áhuga í frétta­skýr­ingu sem birt­ist á vef Kjarn­ans 30. nóv­em­ber í fyrra, en grein­ing­ar­fyr­ir­tækið Stockvi­ews sendi frá sér verð­mat á félag­inu, þar sem fram kom að fyr­ir­tækið var und­ir­verð­lagt og horft til tólf mán­aða væri verðið 433 millj­arðar en ekki 290 millj­arðar eins var þegar verð­matið kom fram. 

Miklir hags­munir líf­eyr­is­sjóða

Tel­eios Capital, evr­ópskur fjár­fest­inga­sjóð­ur, hefur bæst í hóp stærstu hlut­hafa félags­ins að und­an­förnu og á félagið nú 1,07 pró­sent hlut, sem er virði um 3,3 millj­arða króna, og er félagið 17. stærsti hlut­haf­inn miðað við þá stöð­u. 

Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er næst stærsti hlut­hafi félags­ins með 9,74 pró­sent hlut, Gildi líf­eyr­is­sjóður á 6,6 pró­sent hlut, LSR (A og B deild) á 6,6 pró­sent hlut og Birta líf­eyr­is­sjóður 3,93 pró­sent. Stapi, Festa, Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Brú, Almenni líf­eyr­is­sjóð­ur­inn, Lífs­verk og Söfn­un­ar­sjóður líf­eyr­is­rétt­inda eru einnig allir á meðal 20 stærstu hlut­hafa. 

Sam­an­lagt eiga þessir sjóðir 37,4 pró­sent hlut í Marel og nemur virði þess hlut­ar, miðað við gengi bréfa í félag­inu um þessar mund­ir, 113,6 millj­örðum króna. Það upp­hæð sem nemur um 2,6 pró­sentum af heild­ar­eignum íslenskra líf­eyr­is­sjóða, en sam­kvæmt síð­ustu birtu hag­tölum Seðla­banka Íslands námu heild­ar­eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða um 4.300 millj­örðum króna.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent