Utanríkisráðherrar og föruneyti í bjórbað og mat

Utanríkisráðherrar Íslands og Finnlands heimsóttu Árskógssand um miðjan janúar síðastliðinn en sú heimsókn fól m.a. í sér bjórbað og kvöldverðarboð fyrir finnska utanríkisráðherrann og föruneyti hans. Reikningurinn hljóðaði upp á 185 þúsund krónur.

Timo Soini og Guðlaugur Þór
Timo Soini og Guðlaugur Þór
Auglýsing

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra og Timo Soini utan­rík­is­ráð­herra Finn­lands heim­sóttu Árskógs­sand um miðjan jan­úar síð­ast­lið­inn en sú heim­sókn fól jafn­framt í sér kvöld­verð­ar­boð utan­rík­is­ráð­herra fyrir finnska utan­rík­is­ráð­herr­ann og föru­neyti hans. Þetta kemur fram í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Í frétt RÚV um málið frá því í morgun kemur fram að utan­rík­is­ráðu­neytið hafi greitt í lok síð­asta mán­aðar reikn­ing upp á tæpar 185 þús­und frá Bjór­böðum ehf. á Árskógs­sandi. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá ráðu­neyt­inu er reikn­ing­ur­inn til­komin vegna fyrr­nefndar heim­sóknar Guð­laugs Þórs og Timo Soini í Bjór­böð­in.

Segir í svari ráðu­neyt­is­ins til Kjarn­ans að alls hafi verið fjórtán manns í sendi­nefndum Íslands og Finn­lands, sjö frá hvoru ríki. Þar af hafi verið greiddur aðgangs­eyrir fyrir tíu manns að bað­að­stöð­unni. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef Bjór­baða kostar stakt bjór­bað 7.900 krónur en para­bjór­bað 14.900 krón­ur. 

Þá hafi jafn­framt verið keyptur matur handa örygg­is­verði finnska ráð­herr­ans, íslenskum lög­reglu­mönnum og bíl­stjór­um. Ekki fást afhendir sund­ur­lið­aðir reikn­ing­ar, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu.

Auglýsing

Mál­efni norð­ur­slóða og Norð­ur­skauts­ráðs­ins var ofar­lega á baugi í heim­sókn­inni, segir í svar­inu, en Ísland tekur við for­mennsku í Norð­ur­skauts­ráð­inu af Finn­landi í maí. Af því til­efni var ákveðið að þeir Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra og Soini fund­uðu á Siglu­firði og tækju svo þátt í mál­þingi um norð­ur­slóðir í Háskól­anum á Akur­eyri.

„Á meðan heim­sókn­inni stóð kynntu ráð­herr­arnir sér jafn­framt atvinnu­líf og starf­semi fyr­ir­tækja á Trölla­skaga. Meðal ann­ars heim­sóttu þeir Bjór­böðin á Árskógs­sandi ásamt föru­neyti sínu. Eig­endur fyr­ir­tæk­is­ins, sem jafn­framt reka Bruggs­miðj­una á Árskógs­sandi, hafa hlotið mikið lof fyrir atvinnu­upp­bygg­ingu og nýsköp­un. Má í því sam­bandi nefna að fram­kvæmda­stjór­inn, Agnes Sig­urð­ar­dótt­ir, var á nýárs­dag sæmd ridd­ara­krossi hinnar íslensku fálka­orðu fyrir fram­lag til þró­unar atvinnu­lífs í heima­byggð,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent