Flóttafólk mótmælir brottvísunum

Flóttafólk boðar til mótmæla í dag en það krefst sanngjarnrar málsmeðferðar og að Dyflinnarreglugerðin verði lögð niður, sem og flóttamannabúðir á Ásbrú.

Flóttafólk mótmælir Mynd: No Borders Iceland
Auglýsing

Flótta­menn á Íslandi hafa boðað til mót­mæla í dag klukkan 16:00 við Hall­gríms­kirkju en gengið verður þaðan á Aust­ur­völl. Helstu kröfur þeirra eru að ekki verði fleirum vísað úr landi og að flótta­fólk fái sann­gjarna máls­með­ferð, auk þess að Dyfl­inn­ar­reglu­gerðin og hinar ein­angr­uðu flótta­manna­búðir á Ásbrú verði lagðar nið­ur.

Sam­kvæmt því sem stendur á við­burði vegna mót­mæl­anna á sam­fé­lags­miðl­inum Face­book var kveikur mót­mæl­anna sá fjöldi brott­vís­ana sem blasir við flótta­fólki á Íslandi í hverri viku og það and­lega og lík­am­lega ofbeldi sem hæl­is­leit­enda­kerfið er.

Kröfur flóttafólks á ÍslandiÚtlend­inga­stofnun afgreiddi 790 umsóknir um alþjóð­lega vernd árið 2018, sam­an­borið við 976 afgreidd mál árið 2017. 406 umsóknir voru teknar til efn­is­legrar með­ferðar en þar af voru 111 mál afgreidd með ákvörðun í for­gangs­með­ferð. 152 mál voru afgreidd með ákvörðun um end­ur­send­ingu á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­inn­ar, 70 mál voru afgreidd með synjun á grund­velli þess að við­kom­andi höfðu þegar fengið alþjóð­lega vernd í öðru ríki og 162 umsækj­endur drógu umsóknir sínar til baka eða hurfu frá þeim.

Auglýsing

Auk þeirra 160 ein­stak­linga sem var veitt alþjóð­leg vernd, við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum með ákvörðun Útlend­inga­stofn­unar fengu 35 alþjóð­lega vernd eða mann­úð­ar­leyfi hjá kæru­nefnd útlend­inga­mála, 41 ein­stak­lingur fékk alþjóð­lega vernd og dval­ar­leyfi hér á landi sem aðstand­andi flótta­manns og 53 ein­stak­lingar komu hingað til lands og fengu alþjóð­lega vernd í boði íslenskra stjórn­valda (kvótaflótta­menn). Sam­tals fengu því 289 ein­stak­lingar alþjóð­lega vernd, við­bót­ar­vernd eða dval­ar­leyfi af mann­úð­ar­á­stæðum hér á landi árið 2018. Þetta kemur fram í frétt Útlend­inga­stofn­unar þann 21. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Flótta­fólk í við­kvæmri stöðu

Á síðu fyrir við­burð­inn á Face­book kemur fram að nú, árið 2019, hafi engar opin­berar tölur verið gefnar út en fólkið sem á í hlut sé komið með nóg. Mót­mæli geti ekki beð­ið, þar sem von sé á fjölda brott­vís­ana á næstu vik­um.

„Það er skýrt að með lokun landamæra sinna, hafa Evr­ópu­ríkin tekið afstöðu með upp­runa­hyggju og ras­isma á kostnað mann­úðar og manns­lífa.

Flótta­fólk er eitt af við­kvæm­ustu hópum sam­fé­lags­ins, en hafa þrátt fyrir það hug­rekkið til að veita mót­spyrnu. Sýnum sam­stöðu og mætum á mið­viku­dag­inn!“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent