Í gær gerðu Samtök atvinnulífsins stéttarfélögum tilboð um þriggja ára kjarasamninga að gefnum vissum forsendum, en nú hefur samninganefnd Eflingar samþykkt að leggja fram gagntilboð á morgun. „Þar er komið til móts við kauphækkunarboð Samtaka atvinnulífsins, með því skilyrði að yfirvöld setji fram og standi við skattkerfisbreytingar,“ segir í frétt á vef Eflingar.
Stjórn Eflingar og samninganefnd samþykktu svo ályktun um skattastefnu, þar sem fyrsta skrefið fælist í þeim skattatillögum sem Stefán Ólafsson og Indriði H. Þorláksson hafa mótað í nýútgefinni skattaskýrslu sinni, að því er segir í frétt Eflingar.
Þar er lagt til að tekjuskattar á 90% almennings myndu lækka, en að tekjuhæstu fimm prósentin myndu borga meira. Stjórnin og samninganefndin krefjast þess að aðgerðirnar sem skýrslan leggur til verði innleiddar „strax á næstu fjárlögum, og að skattbyrði tekjulægstu hópa verði með öllu aflétt eigi síðar en árið 2021.“
Ályktun stjórnar og samninganefndar er svohljóðandi:
„Stjórn og samninganefnd Eflingar – stéttarfélags þakka Stefáni Ólafssyni og Indriða Þorlákssyni fyrir afar vandaða vinnu við smíði skýrslunnar „Sanngjörn dreifing skattbyrðar“ sem út kom í febrúar 2019.
Ljóst er að tillögur skýrslunnar víkja frá ítrustu kröfum í kröfugerð Eflingar á hendur ríkinu og fara í sumum atriðum aðrar leiðir en þar er lagt til. Engu að síður myndu tillögurnar, kæmu þær til framkvæmda, létta skattbyrði lægstu launa um 40-60% prósent og færa skattkerfið verulega í réttlætisátt. Tillögurnar eru framkvæmanlegar á einu ári og í skýrslunni er að auki bent á fjölda leiða til að fjármagna enn frekari lækkun skattbyrði lægstu hópa.
Stjórn Eflingar – stéttarfélags styður tillögur skýrslunnar en með þeim fyrirvara að þær séu einungis fyrsta skref í áttina að því markmiði að gera lægstu laun með öllu skattfrjáls. Þess er krafist að þær aðgerðir sem skýrslan leggur til verði innleiddar strax á næstu fjárlögum, og að skattbyrði tekjulægstu hópa verði með öllu aflétt eigi síðar en árið 2021.