Stjórnvöld gætu setið með vinnumarkaðinn í fanginu út kjörtímabilið

Verkalýðsforystan virðist nokkuð einróma um að stjórnvöld þurfi að fara að koma að lausn á vinnumarkaðsdeilum. Því er haldið fram að samstaðan í róttækasta arminum sé að aukast.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Auglýsing

Það virð­ist fyr­ir­liggj­andi að deilur á vinnu­mark­aði munu ekki leys­ast án umtals­verðrar aðkomu stjórn­valda. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir í Morg­un­blað­inu í dag að val­kostir stjórn­valda séu skýr­ir: ann­að­hvort verði þau „með vinnu­mark­að­inn í fang­inu út kjör­tíma­bilið eða fá vinnu­frið og byggja upp betra, rétt­lát­ara og stöðugra sam­fé­lag.“

­Stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins krefj­ast kerf­is­breyt­inga sem snúa að breyttu skatt­kerfi, aðgerða á hús­næð­is­mark­aði og aðgerðum sem snúa að verð­trygg­ingu. Ragnar segir að hann skynji vilja stjórn­valda til að koma í gegn ákveðnum kerf­is­breyt­ingu, sér­stak­lega í hús­næð­is­málum og varð­andi verð­trygg­ing­una. „Mitt mat á stöð­unni er að þetta sé leys­an­legt og það er til mik­ils að vinna fyrir alla aðila.“ Ljóst sé að samn­ingar náist ekki án aðkomu stjórn­valda, að hans mati.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir í sam­tali við sama blað að stjórn­völd séu að und­ir­búa ýmsar til­lögur sem greitt gætu fyrir gerð kjara­samn­inga en að aðkoma stjórn­valda hangi á því að það sjái til lands í kjara­við­ræð­um.

Auglýsing
Sam­tök atvinn­u­lífs­ins gerðu stétt­­­ar­­­fé­lögum til­­­­­boð í vik­unni um þriggja ára kjara­­­samn­inga að gefnum vissum for­­­send­­um. Í því fólst meðal ann­ars að laun undir 600 þús­und krónum á mán­uði myndu hækka um 20 þús­und krónur á mán­uði á hverju ári samn­ings­tím­ans en hærri laun um 2,5 pró­sent á samn­ings­tím­an­um. Efl­ing, VR og verka­lýðs­fé­lög Akra­ness og Grinda­vík­ur, sem sigla í sam­floti í við­ræð­un­um, lögðu svo fram gagntil­boð í gær þar sem komið var „til móts við kaup­hækk­­­un­­­ar­­­boð Sam­­­taka atvinn­u­lífs­ins, með því skil­yrði að yfir­­­völd setji fram og standi við skatt­­­kerf­is­breyt­ing­­­ar.“ sam­kvæmt því sem kom fram í frétt á vef Efl­ing­­­ar. Sam­tök atvinnu­lífs­ins höfn­uðu gagntil­boð­inu.

Segja að sam­staða sé að minnka

Í Frétta­blað­inu er greint frá því að sams­konar til­boð og Sam­tök atvinnu­lífs­ins gerðu ofan­greindum fjórum félögum hafi verið rætt við Starfs­greina­sam­band­ið. Það hafi ekki litið á til­boðið sem alvöru til­boð og því hafi ekki verið gert neitt gagntil­boð.

Blaðið seg­ist hafa heim­ildir fyrir því að það hafi komið á óvart hversu vel félögin fjög­ur, sem hafa hingað til málað sig rót­tæk­ustu lit­unum í umræð­unni, hafi tekið í til­boð Sam­taka atvinnu­lífs­ins og spyrðu hvers konar rót­tækni væri fólgin í því að ætla að sækja allar kjara­bætur til rík­is­ins. Auk þess er haft eftir þeim heim­ild­ar­mönnum að brestir séu komnir í sam­stöðu félag­anna fjög­urra. VR og Verka­lýðs­fé­lag Akra­ness séu farin að sýna minnk­andi átaka­á­huga á meðan að full­trúar Efl­ing­ar, sem Verka­lýðs­fé­lag Grinda­víkur er talið fylgja að mál­um, séu „til­búnir í harð­ari aðgerð­ir“.

Mik­ill stuðn­ingur við átök innan Efl­ingar

Átaka­hugur Efl­ingar nýtur stuðn­ings innan vébanda félags­ins. Í nýrri könnun sem Gallup fram­kvæmdi meðal félags­manna Efl­ingar kom í ljós afdrátt­ar­laus stuðn­ingur við kröfu­gerð félags­ins í kjara­samn­ing­um. Tæp­lega 80 pró­sent félags­manna töldu hana sann­gjarna og sama hlut­fall seg­ist hlynnt því að fara verk­fall til að knýja á um launa­kröfur verka­lýðs­fé­lag­anna.

Auglýsing
Í frétt á vef félags­ins segir að það sé ekki „síst erlendur hluti vinnu­aflsins sem að fylkir sér bak við launa­kröf­urnar en sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar hefur stuðn­ingur við kröfur og verk­falls­að­gerðir auk vænt­inga um launa­hækk­anir í kjöl­far kjara­samn­inga til­hneig­ingu til að vera meiri meðal félaga af erlendum upp­runa.“

Fjöldi erlendra rík­is­borg­ara sem hér starfar hefur vaxið gríð­ar­lega á und­an­förnum árum. Þeir voru 44.675 í byrjun þessa mán­að­ar. Þar af voru Pól­verjar, sem eru langstærsta þjóð­ar­brot sem búsett er hér­lend­is, alls 19.399. Það þýðir að það búa fleiri Pól­verjar á Íslandi en búa til að mynda í heild sinni á Akur­eyri.

Stjórn Efl­ingar og samn­inga­­­nefnd hafa einnig sam­þykkt ályktun um skatta­­­stefnu, þar sem fyrsta skrefið fælist í þeim skatta­til­lögum sem Stefán Ólafs­­­son og Ind­riði H. Þor­láks­­­son hafa mótað í nýút­­­­­gef­inni skatta­­­skýrslu sinni.

Þar er meðal ann­ars lagt til að tekju­skattar á 90 pró­­sent almenn­ings myndu lækka, en að tekju­hæstu fimm pró­­­sentin myndu borga meira. Stjórnin og samn­inga­­­nefndin krefj­­­ast þess að aðgerð­­­irnar sem skýrslan leggur til verði inn­­­­­leiddar „strax á næstu fjár­­­lög­um, og að skatt­­­byrði tekju­lægstu hópa verði með öllu aflétt eigi síðar en árið 2021.“

Fólk orðið óþol­in­­mótt

Drífa Snædal, for­­seti Alþýð­u­­sam­­bands Íslands, fjallar um stöðu mála í kjara­við­ræð­unum í föst­u­dag­­spistli sín­um í gær. Þar segir hún að vikan hafi ein­­kennst af við­ræðum við stjórn­­völd og ótelj­andi öðru sam­­töl­u­m,  jafnt for­m­­legum sem ófor­m­­leg­um, um hvernig hægt yrði að ná sem bestum kjara­­bótum í við­ræð­unum sem nú standa yfir. „Næsta vika ber von­andi í skauti sér skýr­­ari mynd af stöð­unni og hvers er að vænta bæði frá stjórn­­völdum og atvinn­u­rek­end­­um. Fólk er auð­vitað orðið óþol­in­­mótt og það er vel skilj­an­­legt, ferlið hefur tekið lengri tíma en ætl­­unin var en von­andi verður útkoman þeim mun betri og heild­­ar­­myndin fyllri.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent