WOW air sagt óska eftir lengri fresti til að greiða flugvallargjöld erlendis

Ekkert hefur verið gefið upp um hvernig viðræður WOW air og Indigo Partners ganga.

Skúli Mogensen
Auglýsing

WOW air hefur óskað eftir fresti fram í miðjan mars til að gera upp ógreidd flug­vall­ar­gjöld á erlendum flug­völl­u­m. 

Vef­síðan Túrist­i.is greinir frá þessu, og vitnar til bréfs sem félagið hefur sent frá sér um fyrr­nefnd atriði.

Eig­endur skulda­bréfa WOW air veittu félag­inu frest fram í lok febr­úar til að ljúka samn­inga­við­ræðum við banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið Indigo Partners, en ekk­ert liggur fyrir um það ennþá hvernig þær við­ræður ganga, og hefur WOW air ekki upp­lýst um ganga mála und­an­farnar vik­ur.

Auglýsing

„Í lok þessa mán­aðar rennur út frest­ur­inn sem eig­endur skuld­bréfa í WOW air veittu Indigo Partners og Skúla Mog­en­sen til að ná sam­komu­lagi um kaup banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lags­ins á stórum hlut í íslenska flug­fé­lag­inu. Samn­inga­við­ræð­urnar hafa staðið yfir í rúmar ell­efu vikur en ekki fást neinar upp­lýs­ingar um gang mála. Hvorki Skúli Mog­en­sen né blaða­full­trúi Indigo Partners svara fyr­ir­spurnum en líkt og Túristi greindi frá þá byggði ný grein banda­rísku frétta­stof­unnar CNBC, um mögu­leg kaup Indigo á WOW air, á gömlum til­vitn­unum í William Franke, stjórn­anda WOW air.

Á sama tíma fást ekki svör frá flug­véla­leig­unni Avolon um hvort WOW air verði heim­ilt að bakka út úr tólf ára leigu­samn­ingi á fjórum nýjum Air­bus A330 breið­þot­um. Leigu­verð á einni slíkri nemur hátt í 100 millj­ónum kóna og standa tvær af þot­unum fjórum nú mál­aðar og merktar WOW air við verk­smiðju Air­bus í Tou­louse. Upp­haf­lega stóð til að afhenda þot­urnar TF-BIG og TF-MOG í lok síð­asta árs en því var seinkað fram í febr­ú­ar. Að mati aðila sem vel þekkja til þá gæti WOW air þurft að greiða á bil­inu 300 til 500 millj­ónir króna fyrir að losna undan leigu­samn­ingi á hverri og einni breið­þotu. Það eru því umtals­verðar upp­hæðir í húfi og ekki ólík­legt að þessir dýru leigu­samn­ingar hafi sett strik í reikn­ing­inn í við­ræð­unum um fjár­fest­ingu Indigo Partners í WOW air,“ segir í umfjöllun Túrista.

Greint var frá því í des­em­ber í fyrra, að WOW air væri nú að vinna að því að ná sam­komu­lagi við  Indigo Partners um að fjár­­­festa í sér, og gæti sú fjár­­­fest­ing verið upp á allt að 75 millj­­ónir dala, eða 9,4 millj­­arða króna. 

WOW air tap­aði alls 33,6 millj­­­­ónum dala, sem jafn­­­­­­­gildir um 4,2 millj­­­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2018. Á sama tíma­bili í fyrra nam tap félags­­­­ins 13,5 millj­­­­ónum dala, jafn­­­­virði tæp­­­­lega 1,7 millj­­­­arða króna miðað við núver­andi gengi. EBITDA félags­­­­ins fór úr því að vera jákvæð um 8,8 millj­­­­ónir dala fyrstu níu mán­uði síð­­­­asta árs í að vera nei­­­­kvæð um 18,9 millj­­­­ónir dala nú, sem er um 2,3 millj­­­­arða íslenskra króna.

WOW air sagði upp fjölda fólks í des­em­ber, en upp­sagn­irnar náðu til um 350 starfs­manna. Skúli Mog­en­sen, eig­andi og for­stjóri WOW air, sagði við það til­efni að félagið hefði farið útaf spor­inu, og að hann hefði gert dýr­keypt mis­tök, en upp­sagn­irnar væru liður í hag­ræð­ingu í rekstri til að takast á við breytta stöðu og hverfa aftur til þess skipu­lags sem hefði reynst félag­inu vel í upp­hafi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent