Ármann: Höfum ekkert með stjórn GAMMA að gera

Kvika er ekki orðinn eigandi Gamma. Forstjóri Kviku segir að misskilningur birtist í opnu bréfi VR.

armann-orvaldsson_10054510536_o.jpg
Auglýsing

Ármann Þor­valds­son, for­stjóri Kviku, segir að það sé mis­skiln­ingur sem birt­ist í opnu bréfi VR, þar sem orðum er beint að Kviku banka, vegna starf­semi Almenna leigu­fé­lags­ins, sem er í eigu Gamma. 

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans segir Ármann að Kvika sé ekki orð­inn eig­andi GAMMA og hafi því ekk­ert með stjórn GAMMA að gera. „Staðan er sú að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefur enn ekki heim­ilað kaup Kviku á Gamma og við því ekki eig­endur félags­ins. Við von­umst auð­vitað eftir því að SKE sam­þykki kaupin en það geta liðið vikur eða mán­uðir þar til það ger­ist.Þar til kaupin ganga í gegn höfum við ekk­ert með stjórn GAMMA að gera og er óheim­ilt að reyna að hafa ein­hver áhrif á rekstur félags­ins og sjóða­stýr­ingu þess,“ segir Ármann.

Eins og greint var frá fyrr í dag, segir í opnu bréfi á vef VR að ef Almenna leigu­fé­lagið láti ekki af „grimmd­ar­verk­um“ sínum gagn­vart leigu­tök­um, þá muni félagið taka 4,2 millj­arða króna úr stýr­ingu hjá GAMMA. Fjög­urra daga frestur eru gef­inn til að bregð­ast við. 

Auglýsing

„Stjórn VR sættir sig ekki við þetta. Við kjósum að láta ekki bendla okkur við aðila sem beita slíkum með­ulum og höfum tekið þá ákvörðun að veita Kviku banka fjög­urra daga frest til þess að láta Almenna leigu­fé­lagið hætta þessum grimmd­ar­verkum og koma því þannig fyrir að leiga félags­ins hækki ekki umfram verð­lag og að leigj­endum verði tryggt hús­næð­is­ör­yggi. Hafi það ekki verið gert innan fjögra daga mun VR taka allt sitt fé úr eigna­stýr­ingu hjá Kviku banka sem er um 4,2 millj­arðar króna,“ segir í bréfi VR.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent