Segja hækkun á leigu vera grimmd, taumlausa græðgi og mannvonsku

VR gefur Kviku banka 4 daga frest til þess að láta Almenna leigufélagið hætta því sem VR kallar grimmdarverk. VR mun taka allt sitt fé úr eignastýringu hjá þeim ef leiga félagsins hækkar umfram verðlag og ef leigjendum verður ekki tryggt húsnæðisöryggi.

VR - stéttarfélag Mynd: www.vr.is
Auglýsing

Stjórn VR hefur birt opið bréf til Kviku banka á vef­síðu sinni. Í því kemur fram að í ljósi þess að fjár­mála­fyr­ir­tækið Gamma sé í eigu Kviku banka – og stýri Almenna leigu­fé­lag­inu – beina þau orðum sínum til stjórn­enda Kviku banka.

„VR hafa borist gögn með sam­skiptum Almenna leigu­fé­lags­ins við nokkra leigj­endur sína þar sem enn á ný er án fyr­ir­vara, eða nokk­urra hald­bærra raka, kraf­ist tug­þús­unda hækk­unar leigu og leigj­endum settir þeir afar­kostir að sam­þykkja hækk­un­ina ellegar vera hent á göt­una án húsa­skjóls. Umhugs­un­ar­frestur sem leigj­endum er gef­inn til að sam­þykkja eða hafna til­boð­inu er ein­ungis fjórir dag­ar. Ljóst er að tug­þús­unda hækkun á leigu gerir væntar hækk­anir sem VR er nú að semja um við Sam­tök atvinnu­lífs­ins að eng­u,“ segir í bréf­in­u. 

Stjórnin telur að varla sé hægt að lýsa þessu með öðrum orðum en sem grimmd, taum­lausri græðgi og mann­vonsku.

Auglýsing

Sætta sig ekki við ástandið

„Stjórn VR sættir sig ekki við þetta. Við kjósum að láta ekki bendla okkur við aðila sem beita slíkum með­ulum og höfum tekið þá ákvörðun að veita Kviku banka fjög­urra daga frest til þess að láta Almenna leigu­fé­lagið hætta þessum grimmd­ar­verkum og koma því þannig fyrir að leiga félags­ins hækki ekki umfram verð­lag og að leigj­endum verði tryggt hús­næð­is­ör­yggi. Hafi það ekki verið gert innan fjögra daga mun VR taka allt sitt fé úr eigna­stýr­ingu hjá Kviku banka sem er um 4,2 millj­arðar króna,“ segir í opna bréf­in­u. 

Með bréf­inu er tekið dæmi um póst frá Almenna leigu­fé­lag­inu til leigj­anda sem sendur var fjórum dögum fyrir 5. febr­ú­ar.

„Góðan dag, Nú líður að lokum leigu­samn­ings þíns um íbúð­ar­hús­næði við xxxxxx nr. xx, 108 - Reykja­vík og langar okkur því að bjóða þér að end­ur­nýja hann. Samn­ing­ur­inn rennur út þann 31.03.2019. Við getum boðið þér tveggja ára leigu­samn­ing á kr. xxx.xxx,- á mán­uði. Vin­sam­leg­ast stað­festu end­ur­nýjun fyrir þriðju­dag­inn 5. febr­úar með því að svara þessum pósti. Við biðjum þig jafn­framt um að láta okkur vita viljir þú ekki end­ur­nýja samn­ing­inn.

Endi­lega vertu í sam­bandi við okkur sem fyrst með hvað þú hyggst ger­a.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent