Enn lækka lægstu verðtryggðu vextir – Eru nú 2,15 prósent

Lægstu vextir á verðtryggðum lánum hafa lækkað um þriðjung á undanförnum árum og eru nú rétt yfir tvö prósent. Dýrustu vextir viðskiptabanka eru næstum tvöfalt hærri.

Það getur munað miklu á þeim kjörum sem standa fólki sem vill kaupa húsnæði til boða.
Það getur munað miklu á þeim kjörum sem standa fólki sem vill kaupa húsnæði til boða.
Auglýsing

Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur lækkað breyti­lega verð­tryggða vexti sína úr 2,46 pró­sent í 2,15 pró­sent. Hann býður nú upp á lægstu verð­tryggðu vexti sem í boði eru á Íslandi.

­Fyrir helgi lækk­aði Líf­eyr­is­sjóður verzl­un­ar­manna sína verð­tryggðu íbúða­lána­vexti niður í 2,3 pró­sent og voru það lægstu slíkur vextir sem hafa verið í boð­i. 

Báðir sjóð­irnir eru þó með hámark á sínum lán­um. Frjálsi lánar til að mynda upp að 40 millj­ónir króna fyrir par og mest fyrir 70 pró­sent af kaup­verði, en þó aldrei hærri upp­hæð en sem nemur sam­an­lögðu virði bruna­bóta­mats og lóð­ar­verðs. Þá lánar Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn ein­ungis sjóðs­fé­lögum og ekki fyrir end­ur­fjár­mögnun frá öðrum lán­veit­end­um.

Auglýsing
Lífeyrissjóður verzl­un­ar­manna lánar fyrir allt að 70 pró­sent af kaup­verði en aldrei hærri upp­hæð en 50 millj­ónum króna. Hjá honum þarf lán­tak­andi ein­ungis að hafa greitt einu sinni í sjóð­inn til að vera láns­hæfur og hægt er að end­ur­fjár­magna lán hjá hon­um.

Hröð vaxta­lækkun hjá líf­eyr­is­sjóð­unum

Verð­tryggðir vextir hafa hríð­lækkað á Íslandi á und­an­förnum þremur og hálfu ári. Breyt­ingin hófst haustið 2015 þegar stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins fóru að lána aftur á fullu til sjóðs­fé­laga sinna til íbúð­ar­kaupa á betri kjörum og að hærra veð­hlut­falli. Þá voru lægstu breyti­legu vextir sem í boði voru 3,2 pró­sent. Nú eru þeir, líkt og áður sagði, umtals­vert lægri, eða 2,15 pró­sent. Það þýðir að vext­irnir hafa lækkað um þriðj­ung frá því að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hófu aftur að lána af krafti til sinna sjóðs­fé­laga.

Líkt og rakið var ítar­lega í frétta­skýr­ingu í Kjarn­anum um helg­ina hafa íslensku við­skipta­bank­arnir ekki getað haldið í við þá vaxta­lækkun sem orðið hefur hjá líf­eyr­is­sjóðum lands­ins. Vextir þeirra eru miklu hærri en þeir sem líf­eyr­is­sjóð­irnir bjóða upp á. Ein ástæða þess eru sér­tækir banka­skattar sem þeir greiða en sér­stakur skattur á fjár­mála­fyr­ir­tæki er 0,376 pró­sent af öllum heild­ar­skuldum umfram 50 millj­arða króna.Samanburður á lánum raðað frá hagstæðustu breytilegu verðtryggðu vöxtum til hinna óhagstæðustu. Talan í reitnum hjá Arion banka miðar við 80 prósent lán og er því hærri en 3,89 prósent vextirnir sem bankinn býður vegna 70 prósent láns. Mynd: Herborg.is

Hösk­uldur H. Ólafs­son, banka­stjóri Arion banka, sagði í upp­gjörstil­kynn­ingu þess banka í síð­ustu viku að ljóst væri að erfitt yrði að ná við­un­andi arð­semi „án umtals­verðra hækk­ana á útláns­vöxtum þegar rík­is­valdið við­heldur ofur­sköttum á banka­kerfið og eft­ir­lits­að­ilar bæta við eig­in­fjár­kröfum og öðrum álög­um.“

Lán afgreidd á sama stað

Vextir við­skipta­bank­anna á breyti­legum verð­tryggðum lánum upp að 70 pró­sent veð­hlut­falli eru 3,55 til 3,89 pró­sent. Það þýðir að dýr­ustu verð­tryggðu vext­irnir þeirra, sem eru hjá Arion banka, eru ekki langt frá því að vera tvö­falt hærri en ódýr­ustu vext­irn­ir, sem eru hjá Frjálsa líf­eyr­is­sjóðnum og eru 2,15 pró­sent.

Frjálsi líf­eyr­is­sjóð­ur­inn er rek­inn af Arion banka og er til húsa í höf­uð­stöðvum bank­ans í Borg­ar­túni. Þá sinna ráð­gjafar í úti­búum Arion banka í Borg­ar­túni, Bílds­höfða og Smára­túni afgreiðslu lána fyrir Frjálsa líf­eyr­is­sjóð­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent