Félag eldri borgara fagnar framkominni kröfu stéttarfélaga og sambanda innan ASÍ um að stigið verði ákveðið skref til lækkunar á skerðingu almannatrygginga úr 45 prósent í 30 prósent vegna lífeyris frá lífeyrissjóðum. Þetta var samþykkt á aðalfundi félagsins í gær, 19. febrúar, og greint frá í tilkynningu sem send var út í dag.
„Sú óréttláta skerðing sem viðgengst í dag á sér ekkert fordæmi í þeim löndum sem við berum okkur saman við og stuðlar að fátækt meðal eldri borgara og rýrir traust á lífeyrissjóðum,“ segir í tilkynningunni.
Einnig leggur FEB áherslu á að tryggður verði jöfnuður milli lífeyrisþega gagnvart almannatryggingum, vegna lífeyris frá lífeyrissjóðum sem tilkominn sé vegna skylduiðgjalds, hvort sem lífeyrir komi úr samtryggingu eða séreign.
Félagið leggur jafnframt allt traust sitt á að ASÍ fylgi kröfunni fast eftir í viðræðum við stjórnvöld og ekki verði hvikað frá henni fyrr en ásættanleg niðurstaða fáist.