Vill ekki að Lífeyrissjóður verzlunarmanna fjárfesti í félögum sem borga ofurlaun

Ragnar Þór Ingólfsson sendir fjármálakerfinu þau skilaboð að hann muni beita sér fyrir því að Lífeyrissjóður verzlunarmanna fjárfesti ekki í félögum sem greiða kaupréttarsamninga eða ofurlaun. Hann mun funda með Kviku banka á morgun.

Ragnar Þór Ingólfsson
Auglýsing

„Ég mun beina þeim til­mælum til nýkjör­innar stjórnar að haga sínum fjár­fest­ingum með þeim hætti að það verði ekki fjár­fest í fyr­ir­tækjum sem eru með kaup­rétt­ar­samn­inga eða ofur­laun eða bónusa. Eða haga sér með þeim hætti eins til dæmis eins og Almenna leigu­fé­lag­ið, að beina við­skiptum sínum frá slíkum félög­um. Það verða skýr skila­boð sem við munum senda nýrri stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzl­un­ar­manna.“

Þetta segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut klukkan 21 í kvöld.

Ný stjórn verður kosin í Líf­eyr­is­sjóði verzl­un­ar­manna, næst stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins og eins stærsta fjár­festis á íslenska mark­aðn­um, á næstu vikum en yfir­stand­andi kjör­tíma­bil stjórn­ar­innar er til loka febr­úar 2019.. Stjórn VR til­nefnir helm­ing stjórn­ar­manna en sam­tök ýmissa atvinnu­rek­enda hinn helm­ing­inn. Á næsta kjör­tíma­bili verður stjórn­ar­for­mað­ur­inn úr röðum þeirra sem VR til­nefn­ir.

Ragnar segir að skila­boð sín út á við vegna þessa séu þau að það verði breyttar og aðrar áherslur heldur en hafa ver­ið. „Það eru skila­boð sem mig langar að senda út inn í fjár­mála­kerf­ið, að menn skulu þá hugsa sig tvisvar um þegar þeir fara gegn hags­munum launa­fólks með þessum hætti, að við munum beita okkur með rót­tækri hætti heldur en áður hefur ver­ið.“

Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neð­an:



Í þætti kvölds­ins ræðir Ragnar Þór þá stöðu sem er komin upp í kjara­við­ræð­um, fer yfir von­brigði sín með til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar í skatta­málum og mjög opin­berar deilur sínar við Almenna leigu­fé­lag­ið. Stjórn VR gaf í byrjun viku Kviku banka, sem er í þeim fasa að kaupa GAMMA, sem stýrir sjóði sem á Almenna leigu­fé­lag­ið, nokkra daga frest til að rifta kaupum sínum á Gamma vegna leigu­hækk­ana Almenna leigu­fé­lags­ins, ella myndi VR færa 4,2 millj­arða króna sem eru í stýr­ingu hjá bank­anum ann­að.

Auglýsing
Ragnar segir að hann og aðrir full­trúar VR muni funda með Kviku á morg­un, fimmtu­dag, vegna máls­ins „Ég veit svo sem ekki hvað kemur út úr því. Við munum standa fast á þess­ari ákvörð­un. Þó að það liggi fyrir að stjórn­endur Kviku hafi ekki bein áhrif á ákvarð­anir Almenna leigu­fé­lags­ins þá getum við alla­vega nýtt okkur það afl sem við höf­um. Að gera stýrt okkar sjóð­stýr­ingu hvert sem við viljum án þess að það kosti okkur eitt­hvað. Það kostar okkur ekk­ert að færa til okkar sjóði, við erum með þannig form á þeim. Við munum færa til okkar sjóði verði Almenna leigu­fé­lagið ekki við kröfum okkar um að hætta þessu ofbeldi sem að er beitt gagn­vart þeirra við­skipta­vinum og leigj­end­um, okkar félags­mönnum meðal ann­ar­s.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent