Fyrsti 5G sendirinn tekinn í notkun hér á landi

„Við finnum að þeir hafa miklar væntingar til þess að við bjóðum upp á 5G hraða á sama tíma og fólk fær hann í öðrum löndum,“ segir forstjóri Nova.

Nova250119_5409.jpg
Auglýsing

Nova hefur tekið í notkun fyrsta 5G send­inn á Íslandi og hefur hafið próf­anir á 5G far­síma- og net­þjón­ustu til við­skipta­vina sinna. „Stór­aukin net­notkun fólks í far­símum snertir Nova sér­stak­lega, sem stærsta veit­anda far­síma­þjón­ustu á Íslandi, en við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins nota netið mun meira en við­skipta­vinir ann­arra fjar­skipta­fyr­ir­tækja. Til marks um það þá fór 54% af allri net­um­ferð í far­símum hér á landi í fyrra, um far­síma­kerfi Nova,“ segir Mar­grét Tryggva­dótt­ir, for­stjóri Nova.

Hún segir að Nova hafi rutt braut­ina þegar kemur að bæði 3G og 4G, og við­skipta­vinir fyr­ir­tæk­is­ins geri kröfur um að fyr­ir­tækið sé áfram í því hlut­verki. „Þegar upp­færslu fjar­skipta­kerfis Nova í 5G verður lokið munu not­endur njóta að með­al­tali tífalt meiri net­hraða miðað við 4G. Búast má við að hún verði komin í almenna útbreiðslu hér á landi á næsta ári, árið 2020,“ segir Mar­grét.

Nova sótti um 5G til­raun­ar­leyfið til Póst og fjar­skipta­stofn­unar fyrr í þessum mán­uði og hefur fyrsti sendir­inn nú verið settur upp á þaki Nova við Lág­múla og í versl­un­inni á fyrstu hæð er þráð­laus net­beinir sem getur mót­tekið 5G merki. Til­raun­irnar munu taka nokkra mán­uði en þró­unin í bún­aði fyrir þráð­laus fjar­skipti hefur verið hröð að und­an­förnu.

Auglýsing

Fyrsti far­sím­inn sem styður 5G, Sam­sung S10, var kynntur á stærstu árlegu far­síma­sýn­ing­unni í Barcelona í gær og er búist við að aðrir far­síma­fram­leið­endur muni á næst­unni kynna síma og tæki sem styðji við tækn­ina.

Net­notkun við­skipta­vina Nova í far­símum hefur stór­auk­ist milli ára og áætlað er að aukn­ingin vaxi áfram um tugi pró­senta á ári, segir í til­kynn­ingu. Það er fyrst og fremst streymi afþrey­ingar og sam­skipta í háum gæðum sem kallar á aukna afkasta­getu fjar­skipta­kerfa. 

„Hver ný kyn­slóð þess­ara kerfa hefur haft í för með sér marg­földun á hraða og þar með á notk­un­ar­mögu­leikum far­síma, úrvali smá­forrita og ann­arra sam­skipta. Stór stökk í net­hraða hafa yfir­leitt leitt af sér stofnun fjölda nýrra fyr­ir­tækja og jafn­vel beinar sam­fé­lags­breyt­ing­ar. Því er upp­bygg­ing fjar­skipta­kerfa í flokki afar mik­il­vægra inn­viða­fjár­fest­inga. Not­endur gera sífellt meiri kröfur og nú þegar bílar, arm­bandsúr og nýj­ustu heim­il­is­tækin eru öll tengd við netið þá þurfa fjar­skipta­kerfin að vera und­ir­búin og Nova hefur lagt út í umtals­verða fjár­fest­ingu til að vera á undan þörf­inni fyrir aukna flutn­ings­þörf. Til merkis um þetta þá fékk fyr­ir­tækið í dag við­ur­kenn­ingu fyrir að vera með hrað­asta netið á Íslandi sem veitt er af óháða vott­un­ar­að­il­anum Ookla Speedtest, en þetta er í þriðja skiptið í röð sem Nova er mælt með hrað­asta netið hér á land­i,“ segir í til­kynn­ingu frá Nova.

Sam­starfs­að­ili Nova í upp­bygg­ingu 5G fjar­skipta­kerf­is­ins er alþjóð­lega fyr­ir­tækið Huawei Technologies en Huawei er leið­andi í þróun háhraða­far­síma­tækni.

Huawei hefur í dag gert samn­ing við yfir 30 fjar­skipta­fyr­ir­tæki í Evr­ópu um upp­bygg­ingu á 5G. Í dag hafa yfir 70 lönd hafið próf­anir á 5G.

Á síð­asta ári fjár­festi Nova um einum millj­arði króna til upp­bygg­ing­ar á fjar­skipta­kerfum sínum og áætlar félagið að fjár­fest­ingin verði rúm­lega einn millj­arður á árinu 2019. 

Búast má við að 5G tæknin verði komin í almenna útbreiðslu árið 2020 þegar fjöldi 5G far­síma og ann­arra tækja, sem styðja þennan aukna hraða, verður kom­inn á mark­að­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent