Hefur ekki orðið var við mikla eftirspurn eftir íslenskum stjórnendum á alþjóðavettvangi

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir verkalýðsfélögin geta bent á hinar miklu hækkanir sem ráðamenn og bankastjórar hafi tekið sér þegar þeir ræða við sína félagsmenn um átök á vinnumarkaði.

Ragnar Þór Ingólfsson
Auglýsing

„Staðan er í algjörum hnút. Við erum komin með allt að borð­inu sem við getum farið og lagt fyrir okkar bak­land til ákvörð­unar um fram­hald­ið. Það sem við erum með í nest­is­box­inu í þeim fund­ar­höldum eru ákvarð­anir kjara­ráðs þar sem emb­ætt­is­manna­kerfið og alþing­is­menn og ráð­herrar tóku sér hund­ruð þús­unda í launa­hækk­an­ir, hlut­falls­lega um 45 pró­sent. Á meðan að þeir eru til­búnir til að liðka fyrir um 6.750 krónum á mán­uði til handa okkar félags­mönn­um.“

Þetta sagði Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut. 

Hann sagð­ist líka geta bent á aðrar launa­hækk­an­ir. „Við erum með ákvarð­anir stjórnar Lands­bank­ans um 80 pró­senta launa­hækkun á banka­stjór­ann þar. Við erum með ýmis­legt í fartesk­inu til að setja hlut­ina í sam­hengi gagn­vart okkar félags­mönnum sem taka síðan ákvörðun um fram­haldið og hversu langt þeir eru til­búnir til að gagna til þess að sækja fram raun­veru­legar kerf­is­breyt­ingar í okkar sam­fé­lag­i.“

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.



Ragnar ræddi líka þann rök­stuðn­ing sem haldið hefur verið á lofti vegna launa­hækk­ana banka­stjóra rík­is­banka, og gaf ekki mikið fyrir hann. „Varð­andi sam­keppn­is­hæfni, þá hef ég ekki orðið var við, í sam­tölum við erlenda kollega mína, mikla eft­ir­spurn eftir íslenskum stjórn­endum á alþjóða­vett­vangi. Síður en svo.“

Auglýsing
Hann segir að þegar rætt sé um sam­keppn­is­hæfni þá þurfi að horfa á það út frá sam­keppn­is­hæfi sam­fé­lags­ins. „Ef við ætlum að tala um sam­keppn­is­hæfni þá þurfum við að bjóða sam­keppn­is­hæf lífs­kjör. Bara þannig að fólk vilji koma hér og starfa. Ef við viljum fá hér menntað fólk og vera hér með gott og upp­byggi­legt sam­fé­lag. Sam­fé­lag þar sem fólk hefur hús­næð­is­ör­yggi. Sam­fé­lag þar sem fólk nær endum saman á dag­vinnu­launum og sam­fé­lag þar sem fólk getur lifað með mann­legri reisn. Þetta er grunn­stef­ið. Ef við ætlum að tala um sam­kvæm­is­hæfni þá verðum við að byrja á réttum enda. Sam­fé­lagið okk­ar, lífs­kjörin hér, þurfa að vera sam­keppn­is­hæf, þannig að við förum kannski að fá eitt­hvað af fólk­inu okkar sem að flúði hér lífs­kjör eftir hrun, og hefur ekki verið fáan­legt til að snúa til bak­a.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent