Ólafur og Karl Gauti ganga til liðs við Miðflokkinn

Tveir fyrrverandi þingmenn Flokks fólksins, sem voru reknir þaðan eftir Klaustursmálið, hafa gengið í Miðflokkinn.

Karl Gauti & Ólafur Ísleifs
Auglýsing

Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son, sem voru kjörnir á þing fyrir Flokk fólks­ins haustið 2017, eru gengnir til liðs við þing­flokk Mið­flokks­ins. Sá þing­flokkur telur nú níu þing­menn og er sá þriðji stærsti á þingi.

Í til­kynn­ingu frá þeim seg­ir: „Áherslur okkar hafa birst í ein­dregnum stuðn­ingi við lág­launa­fólk og þá sem standa höllum fæti í íslensku sam­fé­lagi og þar eigum við sam­leið með Mið­flokkn­um. Við erum sam­mála um nauð­syn þess að leið­rétta kjör hinna lægst laun­uðu og skapa öldruðum og öryrkjum tæki­færi til að bæta hag sinn með auk­inni vinnu án skerð­ingar almanna­trygg­inga­bóta. Við erum sam­mála um áherslur í mál­efnum hins sístækk­andi hóps aldr­aðra sem geti notið ævi­kvölds­ins á heim­ili sínu eins lengi og unnt er, með öruggu fram­boði hjúkr­un­ar­rýma þegar nauð­syn knýr á um slík úrræði.  

Á Alþingi höfum við átt sam­leið í áherslu á nútíma­legt fjár­mála­kerfi laust við okur­vexti og verð­trygg­ingu, þrótt­mikið atvinnu­líf og fjár­hags­legt öryggi íslenskra heim­ila. Við erum sam­mála um mik­il­vægi rétt­ar­rík­is­ins, mann­rétt­inda og að standa gegn hvers kyns vald­níðslu. Við viljum stór­á­tak í sam­göngu­málum og styðja við sókn­ar­færi í hinum dreifðu byggðum lands­ins.

Auglýsing

Á vett­vangi Mið­flokks­ins teljum við okkur geta náð betri árangri í bar­áttu­málum okkar og styrkt mál­efna­stöðu flokks­ins. Við höfum sam­eig­in­lega sýn á sjálf­stæði og full­veldi þjóð­ar­inn­ar, yfir­ráð hennar á auð­lindum sínum og mik­il­vægi vest­rænnar sam­vinnu.

Við teljum að á vett­vangi Mið­flokks­ins styrkjum við stöðu okkar á Alþingi til að knýja á um fram­gang þeirra mál­efna, sem kjós­endur treystu okkur fyrir í síð­ustu alþing­is­kosn­ing­um.“

Reknir vegna Klaust­ur­máls­ins

Karl Gauti og Ólafur voru reknir úr Flokki fólks­ins í lok nóv­em­ber. Ástæðan var alvar­legur trún­að­ar­brestur sem átti sér stað á drykkju­fundi þeirra með fjórum þing­mönnum Mið­flokks­ins, þeim Sig­­­mundi Dav­­íð G­unn­laugs­­­syni, Berg­þóri Óla­­­syni, Gunn­­­ari Braga Sveins­­­syni og Önnu Kol­brúnu Árna­dótt­­­ur,  á Klaust­ur­bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn.Á fund­inum töl­uðu þeir með niðr­andi hætti um konur sér­­­stak­­­lega, og lét Karl Gauti hafa eftir sér að Inga Sæland gæti ekki stjórnað Flokki fólks­ins. Þá var umtals­vert rætt um það á fund­inum að þeir tveir myndu ganga til liðs við Mið­flokk­inn. 

Þeir hafa starfað sem óháðir þing­menn síðan þetta gerð­ist.

Staða Ólafs og Karl Gauta á þingi hefur verið mikil til umræðu hjá þing­mönnum að und­an­förnu. Fyrir lá að þeir gætu raskað fyr­ir­liggj­andi valda­jafn­vægi mjög mikið ef þeir myndu ákveða að ganga til liðs við nýjan flokk frekar en að vera áfram óháð­ir. 

Miðað við mál­efna­stöðu þeirra og for­tíð komu ein­ungis tveir flokkar til greina sem nýtt heim­ili. Sá fyrri var aug­ljós­lega Mið­flokk­ur­inn, flokk­ur­inn sem fund­ur­inn á Klaustri í nóv­em­ber sner­ist um að ná þeim í. Mikil mál­efna­leg sam­leið hefur verið á milli Ólafs og Karls Gauta ann­ars vegar og Mið­flokknum hins vegar í stórum mál­um. Hinn var Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

Nú er ljóst hvar hið nýja heim­ili mann­anna tveggja er.

Voru á Klaustri til að svíkja flokk­inn

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, skrif­aði harð­orða grein í Morg­un­blaðið um þessa tvo fyrr­ver­andi félaga sína í jan­ú­ar. Þar sagði hún menn­ina tvo ein­ungis hafa átt eitt erindi á Klaustur Bar þetta kvöld og að þeir hafi mæta­vel vitað hvað til stóð. „Þeir voru að svíkja flokk­inn sem kom þeim á þing. Er upp­­víst varð hvað þarna hafði farið fram átti stjórn Flokks fólks­ins engan annan kost en að fara fram á afsögn þess­­ara tveggja þing­­manna.“

Inga sagði að eng­inn stjórn­­­mála­­flokkur hefði getað látið for­yst­u­­menn þing­­flokks síns eins og Ólaf og Karl Gauta  kom­­ast upp með önnur eins svik og framin hafi verið á Klaust­­ur­bar 20. nóv­­em­ber síð­­ast­lið­inn án þess að slíkir stjórn­­­mála­­menn hefðu verið látnir axla ábyrgð. „Með þá Ólaf og Karl Gauta áfram inn­­an­­borðs hefði þing­­flokkur Flokks fólks­ins ekki aðeins verið óstarf­hæfur heldur einnig með­­­sekur í þeirri and­­styggð sem fram fór á Klaustur Bar.“

Inga sagði fyrrum félaga sína, þá Ólaf og Karl Gauta, nú vera farna í sög­u­bæk­­urnar sem fyrstu þing­­menn lýð­veld­is­­sög­unnar sem séu látnir sæta ábyrgð fyrir gjörðir sínar með því að þeir eru reknir úr sínum eigin flokki fyrir afbrot sín. „Engir nema þeir sjálfir frömdu þau ótrú­­legu afglöp að fara til sam­­sær­is­fundar við stjórn flokks póli­­tískra and­­stæð­inga Flokks fólks­ins á Klaustur Bar, stein­snar frá Alþing­is­hús­inu þann 20. nóv­­em­ber síð­­ast­lið­inn. Öll heims­­byggðin hefur þegar fengið að frétta af því í fjöl­miðlum hvað gerð­ist þar.“

Inga sagði að fund­­ur­inn á Klaust­­ur­bar hafi haft skýrt mark­mið: að fá Ólaf og Karl Gauta til að ganga til liðs við Mið­­flokk­inn. „Þess vegna sat gervöll stjórn Mið­­flokks­ins á barnum Klaustri með þeim. Til­­efni fund­­ar­ins aug­­ljóst, þessi „hætt­u­­legi“ flokkur fátæka fólks­ins sem auð­­mað­­ur­inn Sig­­mundur Davíð [Gunn­laugs­­son] og félagar hans vildu fyrir hvern mun koma fyrir katt­­ar­­nef.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent