Rúmlega helmingur landsmanna kveðst andvígur innheimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóðvega á Íslandi en um þriðjungur er hlynntur, samkvæmt nýrri könnun MMR. Jákvæðni gagnvart veggjöldum jókst með auknum aldri og konur reyndust jákvæðari en karlar gagnvart veggjöldum. Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Viðreisnar reyndust líklegust til að segjast fylgjandi veggjöldum en stuðningsfólk Miðflokksins ólíklegust. Þá voru stuðningsfólk Miðflokksins, Flokks fólksins og Pírata líklegust til að segjast andvíg innheimtu veggjalda
Sjálfstæðismenn skipt um skoðun
Könnunin var framkvæmd dagana 18. til 28. janúar 2019 en ekki má sjá miklar breytingar á afstöðu landsmanna frá síðustu könnun MMR í maí 2018. Nú kváðust 34 prósent svarenda mjög andvíg slíkum veggjöldum, 18 prósent frekar andvíg, 21 prósent frekar fylgjandi og 11 prósent mjög fylgjandi. Þá kváðust 17 prósent hvorki fylgjandi né andvíg innheimtu veggjalda.
Í greiningu MMR segir að þegar litið sé til breytinga niðurstaðna frá fyrri könnunum má sjá hvernig afstaða fólks til veggjalda hefur breyst eftir flokkslínum eftir því sem liðið hefur á umræðuna. Má í því sambandi nefna að í janúar 2011, þegar Vinstri græn og Samfylking sátu í ríkisstjórn, mældist mest andstaða meðal Sjálfstæðismanna þegar spurt var hvort að nýta ætti veggjöld til að standa undir nýframkvæmdum í samgöngumálum og sögðust ekki nema 11 prósent Sjálfstæðisfólks fylgjandi veggjöldum. Í maí 2017 sögðust hins vegar 32 prósent Sjálfstæðismanna vera hlynnt því að veggjöld stæðu undir rekstri þjóðvega á Íslandi, í apríl 2018 var hlutfallið komið upp í 45 prósent og í dag mælist það 49 prósent
Stuðningsfólk Miðflokksins, Flokks fólksins og Pírata líklegust til að vera andvíg veggjöldum
Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins, 49 prósent, Vinstri grænna, 44 prósent og Viðreisna, 44 prósent reyndust líklegust til að segjast fylgjandi veggjöldum en stuðningsfólk Miðflokksins ólíklegust 14 prósent. Þá voru stuðningsfólk Miðflokksins 73 prósent, Flokks fólksins 61 prósent og Pírata 59 prósent líklegust til að segjast andvíg innheimtu veggjalda en 65 prósent stuðningsfólks Miðflokks og 61 prósent stuðningsfólks Flokks fólksins kváðust mjög andvíg.
Jákvæðni gagnvart veggjöldum jókst með auknum aldri
Konur reyndust jákvæðari gagnvart veggjöldum en karlar en 33 prósent kvenna kváðust fylgjandi innheimtu veggjalda til að standa straum af rekstri þjóðvega á Íslandi, samanborið við 29 prósent karla. Karlar voru hins vegar líklegri til að segjast andvígir innheimtu slíkra gjalda, 54 prósent heldur en konur 49 prósent. Jákvæðni gagnvart veggjöldum jókst með auknum aldri en 42 prósent svarenda í elsta aldurshópi kváðust fylgjandi innheimtu veggjalda, samanborið við 36 prósent þeirra á aldrinum 50 til 67 ára og 27 prósent þeirra undir fimmtugu. Lítill munur var á afstöðu svarenda eftir búsetu.