Stéttarfélagið Efling var látið vita fyrr í þessum mánuði að á einu af stóru hótelunum hangi uppi á töflu „skammarlisti“ yfir þá starfsmenn sem taka sér flesta veikindadaga.
Frá þessu er greint á vefsíðu félagsins.
Halldór Oddson, lögfræðingur hjá ASÍ, segir í frétt Eflingar þetta vera alvarlegt brot gegn persónuvernd og friðhelgi einkalífs starfsfólksins. „Við þessu gætu legið sektir. Við munum tilkynna Persónuvernd um þetta mál.“
Varðandi stemningu á stóru hótelunum segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, að hún sé ekki upp á marga fiska. „Við höfum verið að heimsækja þessi hótel í vetur. Það er komið fram af rosalegri vanvirðingu við starfsfólkið. Ég hef oft reynt að benda fólki á að stemningin á íslenskum vinnumarkaði sé algerlega fyrir neðan allar hellur, sérstaklega þegar kemur að okkar aðfluttu félögum í láglaunastörfunum,“ segir hún.
Hún segir jafnframt að ekki sé nóg að atvinnurekendur bendi á – til að upphefja sjálfa sig – að þeir borgi eftir kjarasamningi. Í fyrsta lagi séu lágmarkslaun á Íslandi svo lág að þau dugi ekki fyrir nauðsynjum hér í Reykjavík. Í öðru lagi sé þetta risavandamál, þessi gegnumgangandi fyrirlitning gagnvart fólki í láglaunastörfum. Atvinnurekendur virðist því miður líta svo á að verka- og láglaunafólk, sérstaklega ef það kemur annarsstaðar frá, sé einfaldlega einnota drasl.
Í frétt Eflingar segir enn fremur að trúnaðarmenn þeirra í stórum hótelkeðjum hafi upplýst þau að yfirmenn skrái nöfn þeirra sem leiti til stéttarfélagsins. „Fólki eru gefin bein og óbein skilaboð að afleiðingar fylgi því að tengjast stéttarfélaginu,“ segir Maxim Baru, yfirmaður félagssviðs Eflingar. „Fólki er bókstaflega sagt að fara ekki til stéttarfélagsins. Mannauðsdeildir margra þessara fyrirtækja hafa þá afstöðu að þau eigi starfsfólkið – og að trúnaðarmennirnir eigi að þjóna mannauðsdeildinni, frekar en að vinna með starfsfólki og stéttarfélagi.“