„Skammarlisti“ hengdur upp á vegg

Fyrr í þessum mánuði var Eflingu gert vart við að á einu af stóru hótelunum hangi uppi á töflu „skammarlisti“ yfir þá starfsmenn sem taka sér flesta veikindadaga.

„Skammarlistinn“
„Skammarlistinn“
Auglýsing

Stétt­ar­fé­lagið Efl­ing var látið vita fyrr í þessum mán­uði að á einu af stóru hót­el­unum hangi uppi á töflu „skammar­listi“ yfir þá starfs­menn sem taka sér flesta veik­inda­daga.

Frá þessu er greint á vef­síðu félags­ins.

Hall­dór Odd­son, lög­fræð­ingur hjá ASÍ, segir í frétt Efl­ingar þetta vera alvar­legt brot gegn per­sónu­vernd og frið­helgi einka­lífs starfs­fólks­ins. „Við þessu gætu legið sekt­ir. Við munum til­kynna Per­sónu­vernd um þetta mál.“

Auglýsing

Varð­andi stemn­ingu á stóru hót­el­unum segir Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, for­maður Efl­ing­ar, að hún sé ekki upp á marga fiska. „Við höfum verið að heim­sækja þessi hótel í vet­ur. Það er komið fram af rosa­legri van­virð­ingu við starfs­fólk­ið. Ég hef oft reynt að benda fólki á að stemn­ingin á íslenskum vinnu­mark­aði sé alger­lega fyrir neðan allar hell­ur, sér­stak­lega þegar kemur að okkar aðfluttu félögum í lág­launa­stör­f­un­um,“ segir hún.

Hún segir jafn­framt að ekki sé nóg að atvinnu­rek­endur bendi á – til að upp­hefja sjálfa sig – að þeir borgi eftir kjara­samn­ingi. Í fyrsta lagi séu lág­marks­laun á Íslandi svo lág að þau dugi ekki fyrir nauð­synjum hér í Reykja­vík. Í öðru lagi sé þetta risa­vanda­mál, þessi gegn­um­gang­andi fyr­ir­litn­ing gagn­vart fólki í lág­launa­störf­um. Atvinnu­rek­endur virð­ist því miður líta svo á að verka- og lág­launa­fólk, sér­stak­lega ef það kemur ann­ars­staðar frá, sé ein­fald­lega einnota drasl.

Í frétt Efl­ingar segir enn fremur að trún­að­ar­menn þeirra í stórum hót­el­keðjum hafi upp­lýst þau að yfir­menn skrái nöfn þeirra sem leiti til stétt­ar­fé­lags­ins. „Fólki eru gefin bein og óbein skila­boð að afleið­ingar fylgi því að tengj­ast stétt­ar­fé­lag­in­u,“ segir Maxim Baru, yfir­maður félags­sviðs Efl­ing­ar. „Fólki er bók­staf­lega sagt að fara ekki til stétt­ar­fé­lags­ins. Mannauðs­deildir margra þess­ara fyr­ir­tækja hafa þá afstöðu að þau eigi starfs­fólkið – og að trún­að­ar­menn­irnir eigi að þjóna mannauðs­deild­inni, frekar en að vinna með starfs­fólki og stétt­ar­fé­lag­i.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent