Haukur Hafsteinsson, sem hefur stýrt Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR) í 34 ár, hefur ákveðið að láta af störfum í sumar. Hann tilkynnti þetta á starfsmannafundi í morgun.
LSR er stærsti lífeyrissjóður landsins og þar með stærsti fagfjárfestir í íslensku atvinnulífi. Sjóðurinn er til að mynda á meðal stærstu eigenda flestra skráðra félaga á íslenskum hlutabréfamarkaði. Stjórn LSR mun síðar í marsmánuði auglýsa starf framkvæmdastjóra laust til umsóknar.
Í frétt á vef LSR segir að Haukur hafi starfað að lífeyrismálum ríkisstarfsmanna allan starfsferil sinn eða frá því hann útskrifaðist úr lögfræði í Háskóla Íslands 1982. Hann réði sig fyrst til starfa hjá Tryggingastofnun ríkisins sem annaðist þá rekstur nokkurra lífeyrissjóða, þar á meðal sjóðs ríkisstarfsmanna.
Frá árinu 1985 hefur Haukur verið forsvarsmaður LSR og hefur gegnt því starfi í 34 ár samfleytt þegar hann hverfur af þeim vettvangi í sumar.
Sjálfur segir Haukur að það tími sé kominn á vistaskiptin. „Ég verð 65 ára á hausti komanda og tel einfaldlega að nú sé réttur tími til breytinga. Í sjálfu sér hefði ég vel getað starfað hér lengur en gerði það upp við mig á síðastliðnu ári að ég myndi hætta sumarið 2019.“
Unnur Pétursdóttir, formaður stjórnar LSR, segir í fréttinni að ákvörðun Hauks hafi komið sér á óvart. Efst í huga hennar sé virðing og þakklæti, „Haukur hefur um áratuga skeið verið drifkraftur, þungamiðja og andlit Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, alltaf vakinn og sofinn yfir velferð sjóðsins og sjóðfélaga. Hann er einn reynsluríkasti forystumaður lífeyrissjóðakerfisins á Íslandi og hafsjór fróðleiks um lífeyrismál ríkisstarfsmanna sérstaklega. Ég er þakklát Hauki fyrir allt það sem hann hefur gert í okkar þágu á farsælum starfsferli. Hann skilur eftir sig skarð sem bíður stjórnar sjóðsins að fylla. Það verður augljóslega ekki auðvelt!“