Haukur Hafsteinsson hættir sem framkvæmdastjóri LSR

Framkvæmdastjóri stærsta lífeyrissjóðs landsins hættir í sumar eftir 34 ár við stjórnvölinn. Starfið verður auglýst til umsóknar í mars.

Haukur hafsteinsson
Auglýsing

Haukur Haf­steins­son, sem hefur stýrt Líf­eyr­is­sjóði starfs­manna rík­is­ins (LSR) í 34 ár, hefur ákveðið að láta af störfum í sum­ar. Hann til­kynnti þetta á starfs­manna­fundi í morg­un.

LSR er stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins og þar með stærsti fag­fjár­festir í íslensku atvinnu­lífi. Sjóð­ur­inn er til að mynda á meðal stærstu eig­enda flestra skráðra félaga á íslenskum hluta­bréfa­mark­aði. Stjórn LSR mun síðar í mars­mán­uði aug­lýsa starf fram­kvæmda­stjóra laust til umsókn­ar.

Í frétt á vef LSR segir að Haukur hafi starfað að líf­eyr­is­málum rík­is­starfs­manna allan starfs­feril sinn eða frá því hann útskrif­að­ist úr lög­fræði í Háskóla Íslands 1982. Hann réði sig fyrst til starfa hjá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins sem ann­að­ist þá rekstur nokk­urra líf­eyr­is­sjóða, þar á meðal sjóðs rík­is­starfs­manna.

Auglýsing

 

Frá árinu 1985 hefur Haukur verið for­svars­maður LSR og hefur gegnt því starfi í 34 ár sam­fleytt þegar hann hverfur af þeim vett­vangi í sum­ar.

Sjálfur segir Haukur að það tími sé kom­inn á vista­skipt­in. „Ég verð 65 ára á hausti kom­anda og tel ein­fald­lega að nú sé réttur tími til breyt­inga. Í sjálfu sér hefði ég vel getað starfað hér lengur en gerði það upp við mig á síð­ast­liðnu ári að ég myndi hætta sum­arið 2019.“

Unnur Pét­urs­dótt­ir, for­maður stjórnar LSR, segir í frétt­inni að ákvörðun Hauks hafi komið sér á óvart. Efst í huga hennar sé virð­ing og þakk­læti, „Haukur hefur um ára­tuga skeið verið drif­kraft­ur, þunga­miðja og and­lit Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins, alltaf vak­inn og sof­inn yfir vel­ferð sjóðs­ins og sjóð­fé­laga. Hann er einn reynslu­rík­asti for­ystu­maður líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins á Íslandi og haf­sjór fróð­leiks um líf­eyr­is­mál rík­is­starfs­manna sér­stak­lega. Ég er þakk­lát Hauki fyrir allt það sem hann hefur gert í okkar þágu á far­sælum starfs­ferli. Hann skilur eftir sig skarð sem bíður stjórnar sjóðs­ins að fylla. Það verður aug­ljós­lega ekki auð­velt!“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent