Segir launahækkanir ríkisforstjóra hafa valdið miklum skaða á kjaradeilum

Halldór Benjamín Þorbergsson er ekki á Facebook og telur það sína mestu gæfu í lífinu. Hann segir að líklega sé engin þjóð í heiminum jafn vel að sér um áhrif verðbólgu á hag heimila og sú íslenska.

Halldór Benjamín Þorbergsson
Auglýsing

Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka atvinnu­lífs­ins, segir að ákvarð­anir um að hækka laun nokkra for­stjóra rík­is­fyr­ir­tækja um tugi pró­senta hafi sent röng skila­boð inn í þær við­ræður sem Sam­tök atvinnu­lífs­ins eiga við verka­lýðs­for­yst­una um þessar mund­ir. „Þetta hefur valdið mjög miklum skaða. Það er mjög erfitt fyrir okkur að kljást við þetta. Þetta eru sið­ferð­is­leg álita­efni, þetta eru kannski hlutir sem skipta kannski ekki öllu máli í þessu þjóð­hags­lega sam­hengi en hafa ofboðs­lega slæm áhrif á mórall­inn í þessum við­ræðum og þar af leið­andi eitt­hvað sem ég hef talað mjög hart gegn.“

Þetta er meðal þess sem Hall­dór sagði í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarn­ans í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Þar ræddi hann meðal ann­ars stöðu mála í kjara­við­ræð­um, yfir­vof­andi verk­föll og útspil rík­is­stjórn­ar­innar til að liðka fyrir lausn í við­ræðum vinnu­mark­að­ar­ins. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neð­an.



Hall­dór ræddi líka um það hvernig kjara­bar­áttan færi nú fram, en mikil átök geisa á mörgum örðum víg­völlum en ein­ungis við samn­inga­borðið í Karp­hús­inu. Það er til að mynda hart tek­ist á á sam­fé­lags­miðl­um. „Ég held að mín mesta gæfa í líf­inu sé sú að hafa aldrei verið á Face­book. Ég sé ekki eftir þeirri ákvörð­un,“ sagði Hall­dór.

Auglýsing
Hann sagð­ist hafa reynt að leggja áherslu á að mál­flutn­ingur Sam­taka atvinnu­lífs­ins væri með þeim hætti að yfir­vegað yfir­bragð væri á hon­um. Íslend­ingar þekki vel gang hag­sveifl­unnar hér­lend­is, hinar miklu upp­sveifl­ur, og muni vel eftir því hvaða áhrif miklar nið­ur­sveiflur hafa til að mynda á lán heim­ila. „Það er örugg­lega engin þjóð sem er betur að sér í áhrifum verð­bólgu á hag almenn­ings en akkúrat Íslend­ing­ar. Við munum alveg hvernig er að kljást við fast­eigna­lán í vax­andi verð­bólgu. Við eigum að forð­ast að hleypa verð­bólg­unni af stað og við eigum að forð­ast það að ganga svo hart að fyr­ir­tækj­unum í land­inu að þeirra eina and­svar verði að fara í upp­sagnir í mjög stórum stíl.“



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent