Flestir skuldabréfaeigendur WOW air, sem lögðu félaginu til fjármuni í skuldabréfaútboði í haust þegar staða félagsins var orðin alvarleg, töldu það skynsamlegast - og í rauna það eina raunhæfa - að veita frekari frest til viðræðna við bandaríska Indigo Partners í þeirri von að samkomulag náist um fjárfestingu félagsins til WOW air fyrir 29. mars.
Stjörnvöld fylgjast með hverju skrefi
Stjórnvöld fylgjast nú náið með stöðunni, samkvæmt heimildum Kjarnans, og það við um ríkisstjórn, yfirmenn Samgöngustofu, ISAVIA og eftirlitsstofnanna í fjármálakerfinu, Seðlabankans og FME. Ríkisstjórnin átti fund seinni partinn í gær, þar sem málefni er tengdust WOW air voru meðal annars rædd, þó fundurinn hafi verið boðaður af öðru tilefni.
Í ljósi þess að staða WOW air er metin fallvölt, samkvæmt heimildum Kjarnans, ef ekki tekst að útvega félaginu fjármagn á næstu misserum, þá hafa yfirvöld sett sig í þær stellingar að illa geti farið en vonir standa þó alltaf til þess að það takist að tryggja fjármögnun félagsins. Arion banki á töluverða hagsmuni undir sem lánveitandi, en bankinn hefur nú þegar farið illa út úr falli flugfélags þegar Primera Air fór í gjaldþrot í lok síðasta árs.
Ljóst er að fall WOW air gæti haft víðtækar neikvæðar afleiðingar á hagkerfi landsins, eins og fram hefur komið áður, og var meðal annars ein sviðsmynd stjórnvalda, sem greind var í fyrra, á þá leið að hagvöxtur gæti farið niður um 3 prósent við fall félagsins.
Undanfarna mánuði hefur þó tekist að vinna mikilvægan tíma til að endurskipuleggja stöðuna, bæði hjá Icelandair og WOW air, en félagið greip meðal annars til sársaukafullra aðgerða í desember þegar 350 starfsmenn misstu vinnuna hjá félaginu í hagræðingaraðgerðum. Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air, sagði við það tilefni að aðgerðirnar hefðu verið nauðsynlegar til að styrkja fjárhaginn og endurskipuleggja framtíðarstefnuna, í takt við væntingar og mat Indigo Partners.
Betra að veita andrými
Í samtölum Kjarnans við hluta af þeim sem tóku þátt í skuldabréfútboðinu í september, hefur komið fram að það sé mat þeirra að best sé að veita eins mikið andrými og þarf til að ljúka viðræðum WOW air og Indigo Partners, þar sem fyrir liggi að miklir fjármunir geti tapast ef allt fer á versta veg og félagið fer í þrot.
Það er helst að óánægja hafi verið uppi hjá bandaríska sjóðstýringarfyrirtæki Eaton Vance en það keypti skuldabréf í útboði WOW air síðastliðið haust fyrir um 10 milljónir evra, eða sem nemur tæplega 1,4 milljarða króna. Fjallað var ítarlega um viðskipti Eaton Vance á Íslandi og hvernig félagið hefur verið að selja eignir undanfarin misseri, í umfjöllun í Markaðnum 16. janúar síðastliðinn.
Aftur viðræður við Icelandair?
Vefsíðan Túristi greindi frá því í dag að Skúli hefði sett sig í samband við Icelandair í vikunni til að kanna hvort möguleiki væri á því að taka upp þráðinn á nýjan leik, en ekki reyndist áhugi á því. Greint var frá því á mbl.is að Skúli hefði haft beint samband við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair Group, en hann hefði lokað á þær. Icelandair hefur sjálft verið að glíma við þungan rekstur og tapaði 6,8 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs.
Viðræður WOW air og Indigo hafa staðið yfir síðan í nóvember þegar ljóst var að Icelandair ætlaði sér ekki að kaupa WOW air. Hinn 81 árs gamli Bill Franke, stýrir félaginu sem er með höfuðstöðvar í Arizona. Horft hefur verið til þess að WOW geti fengið um 9 milljarða fjárfestingu frá Indigo, að uppfylltum skilyrðum.
WOW air tapaði 33,6 milljónum dala, sem jafngildir um 4,2 milljarði króna, á fyrstu níu mánuðum ársins í fyrra. Á sama tímabili árið á undan nam tap félagsins 13,5 milljónum dala, jafnvirði tæplega 1,7 milljarða króna miðað við núverandi gengi.
Mikið er í húfi fyrir íslenskt efnahagslíf, eins og áður segir, enda hefur WOW air verið í lykilhlutverki við uppgang í ferðaþjónustu og efnahagslífi landsins, á undanförnum árum, og flutt til landsins 600 til 700 þúsund ferðamenn á ári, með tilheyrandi margfeldisáhrifum á efnahag landsins.