Sjálfstæðisflokkurinn kominn í kjörfylgi og Sósíalistaflokkurinn næði á þing

Erfitt yrði að mynda starfhæfa ríkisstjórn ef kosið yrði í dag. Sósíalistar mælast inni á þingi, Miðflokkurinn sýnir engin merki þess að jafna sig eftir Klausturmálið og Flokkur fólksins er á góðri leið með að þurrkast út.

Ríkisstjórnarflokkarnir þrír mælast ekki með meirihluta í nýrri könnun Gallup.
Ríkisstjórnarflokkarnir þrír mælast ekki með meirihluta í nýrri könnun Gallup.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig fylgi milli mán­aða og mælist nú með 25 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup sem hefur verið birt­ur. Það er örlítið minna fylgi en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum haustið 2017 þegar 25,3 pró­sent atkvæða féllu honum í skaut. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist sem fyrr stærsti flokkur lands­ins. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Hinir tveir stjórn­ar­flokk­arnir bæta einnig við sig fylgi. Vinstri græn mæl­ast nú með 12,3 pró­sent fylgi sem er einu pró­sentu­stigi meira en í síð­asta mán­uði. Flokk­ur­inn er þó enn nokkuð langt frá kjör­fylgi sínu, sem var 16,3 pró­sent. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn myndi fá níu pró­sent atkvæða ef kosið yrði nú sem er nán­ast sama fylgi og fyrir mán­uði, þegar fylgið mæld­ist 8,8 pró­sent. Enn vantar nokkuð upp á að flokk­ur­inn náði kjör­fylgi sínu sem var 10,7 pró­sent.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír myndu ekki geta myndað meiri­hluta­rík­is­stjórn með því fylgi sem þeir mæl­ast nú með, sem er 46,6 pró­sent. Þá dalar stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina milli mán­aða og mælist nú 48,5 pró­sent, en var 49,1 pró­sent í síð­ustu mæl­ingu Gallup.

Auglýsing

Sós­í­alistar inni, Flokkur fólks­ins úti

Þau tíð­indi eru í könn­un­inni að Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með fimm pró­senta fylgi og næði manni inn á þing ef kosið yrði í dag. Það er önnur könn­unin í röð sem hann mælist með fylgi sem dygði til að ná þeim árangri.

Sam­fylk­ingin tapar fylgi á milli kann­ana, mælist nú með 16,8 pró­sent fylgi en var síð­ast með 19,1 pró­sent. Flokk­ur­inn er þó enn tölu­vert yfir nið­ur­stöðu sinni í síð­ustu kosn­ingum þegar 12,1 pró­sent þeirra sem kusu settu x við S. Sam­fylk­ingin er því næst stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt könn­un­inni líkt og hann mælst þorra kjör­tíma­bils­ins.

Við­reisn bætir lít­il­lega við sig frá síð­asta mán­uði og mælist nú með 9,9 pró­sent fylgi. Píratar dala hins vegar eilítið og njóta nú stuðn­ings 11,6 pró­sent kjós­enda sam­kvæmt könnun Gallup. Blokkin mælist sam­an­lagt með 38,3 pró­senta fylgi.

Mið­flokk­ur­inn sýnir lítil merki þess að rétta aftur úr kútnum eftir Klaust­ur­málið og mælist með 6,7 pró­sent stuðn­ing. Hann var á miklu flugi áður en að það mál kom upp og mæld­ist til að mynda með 12 pró­sent fylgi í nóv­em­ber í fyrra.

Flokkur fólks­ins heldur áfram að dala og nýtur nú stuðn­ings 3,4 pró­sent kjós­enda. Það er lægsta fylgi sem hann hefur mælst með í könn­unum Gallup það sem af er þessu kjör­tíma­bili.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent