Þorgerður Katrín: Frysta þarf laun tekjuhæstu ríkisstarfsmannanna

Samkvæmt formanni Viðreisnar þarf hið opinbera að liðka fyrir gangi viðræðna um kjarasamninga og ganga á undan með góðu fordæmi.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Auglýsing

Hið opin­bera þarf að liðka fyrir gangi við­ræðna um kjara­samn­inga og ganga á undan með góðu for­dæmi. Þetta sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Við­reisn­ar, á milli­þingi flokks­ins í dag en Rúv greinir frá.  

Hún sagði að stéttir sem fengið hafi mestar launa­hækk­anir þurfi að sýna þroska og vilja til að ná þjóð­ar­sátt um jafn­ari tekju­dreif­ingu en nú er. Gefa þyrfti út lof­orð um að laun tekju­hæstu rík­is­starfs­manna verði fryst í ein­hvern tíma. 

Þor­gerður Katrín gagn­rýndi stjórn­völd fyrir aðkomu sína að kjara­samn­ing­um. Stjórnin hefði lofað miklu í upp­hafi um aðkomu sína, meira en hún gæti staðið við. Með því hefði stjórnin kol­fallið á próf­inu í vænt­inga­stjórn­un. Þor­gerður Katrín sagð­ist velta fyrir sér hvað rík­is­stjórnin hefði verið að gera á öllum fund­unum sem hún hefði átt með verka­lýðs­hreyf­ing­unni. „Voru þau að skipt­ast á upp­skriftum eða pæla í plott­inu í Ófærð?“ spurði hún. 

Auglýsing

„Hér þarf hið opin­bera liðka fyrir og ganga á undan með góðu for­dæmi. Þær stéttir sem mestar launa­hækk­anir hafa fengið þurfa að sýna þroska og vilja til að ná þjóð­ar­sátt um að tekju­dreif­ingin verði jafn­ari en hún nú er. Og lofa því að laun þeirra rík­is­starfs­manna sem hæstar hafa tekjur verði í það minnsta fryst í ein­hvern tíma,“ sagði for­mað­ur­inn. 

Jafn­framt sagði Þor­gerður Katrín að fella ætti þjón­ustu sál­fræð­inga undir greiðslu­þátt­töku­kerfi Sjúkra­trygg­inga til að tryggja aðgengi almenn­ings óháð efna­hag. Hún fjall­aði einnig um mál­efni inn­flytj­enda og hæl­is­leit­enda og sagði að kerfið sem að þeim sneri mætti vera mann­eskju­legra. Hún var­aði við því að íslenskir syst­ur­flokkar danska Þjóð­ar­flokks­ins fengju hér dag­skrár­vald í þessum mál­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent