Bindiskyldan afnumin

Höft á fjármagnsflutninga eru nú svo gott sem horfin.

Már Guðmundsson
Auglýsing

Breyt­ingar á lögum um gjald­eyr­is­mál og lögum um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­un­um, sem Alþingi sam­þykkti nýverið tóku gildi í dag, en til stendur að afnema bindi­skyldu vegna nýs gjald­eyris frá 6. mar­s. 

Seðla­bank­inn áformar að setja nýjar reglur um bind­ingu reiðu­fjár vegna nýs inn­streymis erlends gjald­eyris og reglur um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­un­um. Þar á meðal eru reglur sem fela í sér að lækkun bind­ing­ar­hlut­falls frá eldri reglum fer úr 20 pró­sent í 0 pres­ent.

Lækkun bind­ing­ar­hlut­falls­ins markar kafla­skil í beit­ingu hinnar sér­stöku bindi­skyldu á fjár­magnsinn­streymi á skulda­bréfa­markað og í hávaxtainn­stæður sem var sett á í júní 2016.

Auglýsing

Með fram­an­greindum breyt­ingum á lögum um gjald­eyr­is­mál og lögum um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum er sér­stakur aflandskrónu­mark­aður ekki lengur til staðar og þau fjár­magns­höft sem inn­leidd voru í nóv­em­ber 2008 hafa nú nán­ast að öllu leyti verið los­uð, segir í til­kynn­ingu frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og Seðla­banka Íslands.

„Fyr­ir­huguð lækkun á bind­ing­ar­hlut­falli markar kafla­skil í beit­ingu hinnar sér­stöku bindi­skyldu á fjár­magnsinn­streymi á skulda­bréfa­markað og í hávaxtainn­stæður sem var sett á í júní 2016. Mark­mið hennar er að tempra og hafa áhrif á sam­setn­ingu inn­streymis erlends fjár­magns á inn­lendan skulda­bréfa­markað og hávaxtainn­stæður og að styrkja miðl­un­ar­ferli pen­inga­stefn­unn­ar. Bind­ing­ar­hlut­fallið var lækkað úr 40% í 20% í byrjun nóv­em­ber 2018. Nú hafa mynd­ast aðstæður til að lækka bind­ing­ar­hlut­fallið niður í 0% þar sem líkur á umtals­verðu inn­flæði sem leiddi til ofriss krón­unnar og alvar­legrar trufl­unar í miðl­un­ar­ferli pen­inga­stefn­unnar hafa minnkað mik­ið, a.m.k. um sinn. Nú eru fjár­magns­straumar til og frá land­inu í betra jafn­vægi en var þegar hin sér­staka bindi­skylda var upp­haf­lega sett á. Að und­an­förnu hefur verið útflæði á erlendum nýfjár­fest­ingum í skulda­bréf­um. 

Rétt er að vekja athygli á því að fram­an­greindar breyt­ingar munu leiða til þess að fjár­munir sem bundnir hafa verið á bind­ing­ar­reikn­ingum verða því lausir til ráð­stöf­un­ar, á sama hátt og þegar bind­ing­ar­hlut­fall var lækkað úr 40% í 20% í nóv­em­ber sl. Athygli er vakin á því að verði bind­ing­ar­hlut­fall hækkað í fram­tíð­inni eru hin nýsam­þykktu lög afdrátt­ar­laus um að bind­ing­ar­fjár­hæð hald­ist óbreytt út bind­ing­ar­tím­ann. Nýtt fyr­ir­komu­lag hinnar sér­stöku bindi­skyldu mun þó gera aðilum kleift að losa um bind­ing­una með við­skiptum á mark­aði.

Með fram­an­greindum breyt­ingum á lögum um gjald­eyr­is­mál og lögum um með­ferð krónu­eigna sem háðar eru sér­stökum tak­mörk­unum er sér­stakur aflandskrónu­mark­aður ekki lengur til staðar og þau fjár­magns­höft sem inn­leidd voru í nóv­em­ber 2008 hafa nú nán­ast að öllu leyti verið los­uð. Eftir standa tak­mark­anir sem hafa það að meg­in­mark­miði að hin sér­staka bindi­skylda á fjár­magnsinn­streymi nái til­gangi sín­um, þar á meðal tak­mark­anir á afleiðu­við­skiptum í öðrum til­gangi en til áhættu­varna. Þær tak­mark­anir verða skoð­aðar í tengslum við heild­ar­end­ur­skoðun laga um gjald­eyr­is­mál. Sam­hliða þarf að skoða var­an­legt fyr­ir­komu­lag hinnar sér­stöku bind­is­skyld­u,“ segir í til­kynn­ingu Seðla­banka Íslands.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent