Óvæntur viðskiptaafgangur á fjórða ársfjórðungi

Niðurstaðan betri en greiningardeild Arion banka þorði að vona.

vestmannaeyjar_20282969745_o.jpg
Auglýsing

Við­skipta­af­gangur nam 300 millj­ónum króna á fjórða árs­fjórð­ungi en Seðla­banki Íslands birti greiðslu­jafn­að­ar­tölur í morg­un. Sam­kvæmt grein­ing­ar­deild Arion banka eru töl­urnar við fyrstu sýn mun sterk­ari en á horfð­ist. 

Í mark­aðs­punktum grein­ing­ar­deild­ar­innar kemur fram að fyr­ir­fram hafi þau búist við við­skipta­halla, bæði vegna þess að vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður var nei­kvæður um 3,5 millj­arða króna á fjórð­ungnum og hafi það legið nokkurn veg­inn fyrir að rekstr­ar­fram­lög yrðu nei­kvæð. „Frum­þátta­tekj­urnar reynd­ust hins­vegar björg­un­ar­vesti við­skipta­af­gangs­ins og héldu honum á floti. Þær gefa aftur á móti skakka mynd af stöð­unni, þar sem afgangur af þeim virð­ist til­kom­inn vegna tap­rekst­urs inn­lendra félaga, ekki vegna auk­ins þróttar í utan­rík­is­verslun eða auk­innar tekju­sköp­unar erlendra eigna í eigu Íslend­inga.“

Þetta er mun minni afgangur en á sama tíma árið 2017, sem þá var 7,5 millj­arðar króna á föstu gengi, og jafn­framt slakasti fjórði árs­fjórð­ungur frá árinu 2012. „Þrátt fyrir það er nið­ur­staðan mun betri en við þorðum að vona, en spá okkar frá því í októ­ber hljóð­aði upp á 4,6 millj­arða króna við­skipta­halla. Frá­vikið frá spánni má fyrst og fremst rekja til frum­þátta­tekna, sem voru jákvæðar um hvorki meira né minna en 10,1 millj­arðar króna. Séu frum­þátta­tekjur teknar út fyrir sviga mælist 9,8 millj­arða króna við­skipta­halli, sam­an­borið við 9,3 millj­arða króna afgang á sama tíma árið 2017,“ segir í mark­aðs­punkt­un­um. 

Auglýsing

Mynd: Greiningardeild Arion banka

Sam­kæmt grein­ing­ar­deild­inni eru tvær nei­kvæðar breyt­ingar á milli ára og tvær jákvæð­ar. „Ef við byrjum á nei­kvæðu hlið­inni þá voru rekstr­ar­fram­lög nei­kvæð­ari en þau voru fyrir ári síð­an. Það sem skýrir þessa breyt­ingu eru auknar pen­inga­send­ingar á milli landa, en alls námu pen­inga­send­ingar til erlendra ein­stak­linga 7,4 ma.kr. á fjórð­ungn­um, og hafa aldrei mælst meiri. Pen­inga­send­ingar til ein­stak­linga hafa auk­ist jafnt og þétt að und­an­förnu eftir því sem erlendu vinnu­afli fjölg­ar. Það sem vegur hins­vegar þyngst er minni þjón­ustu­af­gangur en fyrir ári síð­an. Líkt og við höfum áður fjallað um má rekja þennan mun fyrst og fremst til útflutn­ings á hug­verkum fyr­ir­tækja í lyfja­iðn­aði.

Af jákvæðu breyt­ing­unum er athygl­is­verð­ast að sjá hversu mikið frum­þátta­tekjur eru að aukast á milli ára, en til þeirra telj­ast aðal­lega laun og fjár­fest­inga­tekj­ur. Ástæðan fyrir auknum afgangi af frum­þátta­tekjum er hins­vegar ekki sú að erlendar eignir Íslend­inga hafi orðið arð­bær­ari, eða að Íslend­ingar eru að fá hærri launa­greiðslur frá erlendum aðil­um, heldur virð­ist sem inn­lend fyr­ir­tæki séu að skila erlendum eig­endum sínum tapi. Fyrir ári síðan var það sama upp á ten­ingn­um, það er að segja inn­lend fyr­ir­tæki í eigu erlendra aðila voru rekin með tapi. Þá hins­vegar greiddu inn­lend fyr­ir­tæki erlendum eig­endum sínum arð, svo jöfn­uður frum­þátta­tekna var nei­kvæður (inn­lendir aðilar greiddu erlendum aðilum meira en þeir fengu greitt frá erlendum aðil­u­m).“ 

Jafn­framt segir að á fjórða árs­fjórð­ungi 2018 hafi eng­inn arður hins­vegar verið greidd­ur, og fyr­ir­tækin rekin með tapi, svo gjalda­hlið­in, þ.e.a.s. það sem inn­lendir aðilar greiða erlendum hafi verið mun lægri en fyrir ári síð­an, á meðan tekju­hliðin hafi verið nán­ast óbreytt. Þetta útskýri við­skipta­af­gang­inn á árs­fjórð­ungnum að mestu leyti.

Hægt er að skoða mark­aðs­punkt­ana hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent