Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar hafa sent Katrínu Jakobsdóttur bréf þar sem þau minna á „mikilvægi EES-samningsins fyrir íslenskt samfélag, heimili og fyrirtæki“ – og í því samhengi mikilvægi þess að afgreiða þriðja orkupakkann hið snarasta.
Frá þessu greinir Þorgerður Katrín í stöðuuppfærslu á Facebook.
Fyrir hönd Viðreisnar og Samfylkingar bjóða þau forsætisráðherra aðstoð sína og lofa þau að gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja framgang málsins á Alþingi.
Í færslunni segir Þorgerður Katrín að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hafi í enn eitt skiptið frestað að leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um staðfestingu á þriðja orkupakkanum. „Ítrekað hefur verið fullyrt að tillagan verði lögð fram í síðasta lagi á þingi í lok febrúar 2019. Í dag er 5. mars og enn er talað um að taka þurfi tíma,“ segir hún.
Hún segir enn fremur að öllum sé ljóst að erfiðleikar séu innan ríkisstjórnar við að koma fram með málið. Flest bendi til þess að ekki sé meirihluti fyrir málinu á þingi á meðal ríkisstjórnarflokkanna.
Til stóð að leggja fram þingmál í febrúar á þessu ári um samþykkt svonefnds þriðja orkupakka Evrópusambandsins vegna aðildar Íslands að EES-samningnum. Þetta kom fram í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar vegna þingvetrarins sem nú stendur yfir.
Rétt í þessu sendum við Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, forsætisráðherra bréf þar sem við minntum á...
Posted by Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir on Tuesday, March 5, 2019