Bjóða forsætisráðherra aðstoð sína

Formenn Viðreisnar og Samfylkingarinnar hafa sent Katrínu Jakobsdóttur bréf þar sem þau minna á „mikilvægi EES-samningsins fyrir íslenskt samfélag, heimili og fyrirtæki“ og í því samhengi mikilvægi þess að afgreiða þriðja orkupakkann hið snarasta.

Logi Einarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Logi Einarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Auglýsing

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar og Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar hafa sent Katrínu Jak­obs­dóttur bréf þar sem þau minna á „mik­il­vægi EES-­samn­ings­ins fyrir íslenskt sam­fé­lag, heim­ili og fyr­ir­tæki“ – og í því sam­hengi mik­il­vægi þess að afgreiða þriðja orku­pakk­ann hið snarasta.

Frá þessu greinir Þor­gerður Katrín í stöðu­upp­færslu á Face­book.

Fyrir hönd Við­reisnar og Sam­fylk­ingar bjóða þau for­sæt­is­ráð­herra aðstoð sína og lofa þau að gera það sem í þeirra valdi stendur til að tryggja fram­gang máls­ins á Alþingi.

Auglýsing

Í færsl­unni segir Þor­gerður Katrín að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hafi í enn eitt skiptið frestað að leggja fram á Alþingi til­lögu til þings­á­lykt­unar um stað­fest­ingu á þriðja orku­pakk­an­um. „Ít­rekað hefur verið full­yrt að til­lagan verði lögð fram í síð­asta lagi á þingi í lok febr­úar 2019. Í dag er 5. mars og enn er talað um að taka þurfi tíma,“ segir hún.

Hún segir enn fremur að öllum sé ljóst að erf­ið­leikar séu innan rík­is­stjórnar við að koma fram með mál­ið. Flest bendi til þess að ekki sé meiri­hluti fyrir mál­inu á þingi á meðal rík­is­stjórn­ar­flokk­anna.

Til stóð að leggja fram þing­­mál í fe­brú­ar á þessu ári um sam­þykkt svo­­nefnds þriðja orku­pakka Evr­­ópu­­sam­­bands­ins vegna aðild­ar Íslands að EES-­samn­ingn­­um. Þetta kom fram í þing­­mála­­skrá rík­­is­­stjórn­­­ar­inn­ar vegna þing­vetr­­ar­ins sem nú stendur yfir.

Rétt í þessu sendum við Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, for­sæt­is­ráð­herra bréf þar sem við minntum á...

Posted by Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir on Tues­day, March 5, 2019


Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent