Skattrannsóknarstjóri lauk rannsókn 97 mála á árinu 2018. Undandregnir skattstofnar í þeim málum nema milljörðum króna. Eru þá ótalin þau mál sem unnið var að en voru felld niður þegar rannsókn þeirra leiddi í ljós að ekki væri tilefni til afskipta skattrannsóknarstjóra. Auk þeirra þau tilvik sem að lokinni frumathugun reyndust ekki kalla á frekari aðgerðir.
Þetta kemur fram á vef skattrannsóknarstjóra ríksins í dag.
Þar segir jafnframt að á árinu 2018 hafi skattrannsóknarstjóri beint 96 málum í refsimeðferð á grundvelli niðurstaðna rannsókna sinna. Þar af hafi 60 málum verið vísað til meðferðar hjá héraðssaksóknara en 27 málum vísað til sektarmeðferðar hjá yfirskattanefnd. Í níu málum hafi verið gengist undir sekt hjá skattrannsóknarstjóra. Hefði rannsókn þessara 96 mála ýmist lokið á árinu 2018 eða á árinu 2017.
Nú í byrjun mars 2019 er refsimeðferð ólokið í 104 málum sem skattrannsóknarstjóri hefur sent til refsimeðferðar. Þar af eru 98 mál í meðferð hjá héraðssaksóknara en 6 hjá yfirskattanefnd, samkvæmt embættinu.
Mikilvægt að mál fái hraða meðferð
Þá kemur fram hjá skattrannsóknarstjóra að mikilvægt sé að þau mál sem eru til meðferðar hjá héraðssaksóknara fái hraða meðferð í ljósi dóma hjá Mannréttindadómstóli Evrópu (MDE) um tvöfalda refsimeðferð.
Fjárhæð sekta vegna mála frá skattrannsóknarstjóra sem voru dæmdar, úrskurðaðar eða samþykktar á árinu 2018 nema samtals um 2,4 milljörðum króna.