Forsætisráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur og fjármála- og efnahagsráðuneyti Bjarna Bendiktssonar hafa birt drög að frumvarpi forsætisráðherra til laga um Seðlabanka Íslands og drög að frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna sameiningar Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins í samráðsgátt til umsagnar.
Umsagnarfrestur er til 18. mars.
Með frumvörpunum er lagt til að Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftirlitið verði sameinuð í eina stofnun.
„Ekki eru lagðar til breytingar á þeim verkefnum sem eru á ábyrgð þessara tveggja stofnana sameiginlega samkvæmt núgildandi lögum. Lúta breytingarnar fremur að sameiningu verkefna hjá einni stofnun og breytingum á stjórnskipan og fyrirkomulagi ákvarðanatöku, einkum í ljósi aukins vægis fjármálastöðugleika,“ segir í tilkynningu stjórnvalda.
Markmið Seðlabankans, samkvæmt frumvarpinu, er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi.
Einn seðlabankastjóri og þrír varaseðlabankastjórar
Forsætisráðherra skipar seðlabankastjóra til fimm ára í senn, að hámarki þó tvisvar sinnum. Þá skipar forsætisráðherra þrjá varaseðlabankastjóra einnig til fimm ára í senn og að hámarki tvisvar sinnum. Einn leiðir málefni er varða peningastefnu, einn leiðir málefni er varða fjármálastöðugleika og einn leiðir málefni er varða fjármálaeftirlit. Varaseðlabankastjórar fjármálastöðugleika og fjármálaeftirlits eru skipaðir eftir tilnefningu fjármála- og efnahagsráðherra.
Rekstur og stjórnun Seðlabankans er í höndum seðlabankastjóra. Hann ber ábyrgð á rekstri bankans og fer með ákvörðunarvald í öllum málefnum hans sem ekki eru öðrum falin. Sumar ákvarðanir eru teknar sameiginlega af seðlabankastjóra og varaseðlabankastjórum.
Ákvarðanir um beitingu tiltekinna valdheimilda bankans eru teknar af peningastefnunefnd, fjármálastöðugleikanefnd og fjármálaeftirlitsnefnd. Nefndirnar eru skipaðar 5-7 fulltrúum, bæði embættismönnum Seðlabankans og utanaðkomandi sérfræðingum á viðkomandi sviði. Seðlabankastjóri er formaður allra þriggja nefnda bankans.
Varaseðlabankastjórar hafa faglega umsjón með vinnu bankans á sínum sérsviðum, segir í frumvarpinu, og munu þeir bera ábyrgð á undirbúningi vinnu fyrir nefndir bankans og sitja jafnframt í einstökum nefndum hans.
Bankaráð hefur eftirlit með því að Seðlabanki Íslands starfi í samræmi við þau lög sem um starfsemina gilda. Í bankaráði sitja sjö manns sem kosnir eru hlutfallskosningu af Alþingi.
„Í frumvarpi sem fjármála- og efnahagsráðherra mun leggja fram samhliða koma fram breytingar á þrjátíu lögum m.a. lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og lögum um greiðslu kostnaðar við opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi. Að auki eru lagðar til þær breytingar á öðrum lögum um fjármálastarfsemi sem nauðsynlegar eru vegna sameiningar Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins. Af breyttu skipulagi Seðlabankans leiðir að lagt er til að kerfisáhættunefnd verði lögð niður og að hlutverki fjármálastöðugleikaráðs verði breytt. Þær breytingar sem lagðar eru til í þessum frumvörpum eru að verulegu leyti byggðar á niðurstöðum þeirra sérfræðinga sem undanfarin ár hafa unnið skýrslur að beiðni stjórnvalda um besta fyrirkomulag stjórnskipunar peningamála, fjármálastöðugleika og fjármálaeftirlits,“ segir í tilkynningu stjórnvalda.