Félagsmenn Eflingar samþykktu boðun verkfalla meðal starfsfólks á hótelum, í rútufyrirtækjum og hjá almenningsvögnum Kynnisferða með meirihluta greiddra atkvæða í dag. Um 92 prósent þeirra sem afstöðu tóku samþykktu verkfallsboðanirnar.
Í fréttatilkynningu frá Eflingu segir að af 1263 greiddum atkvæðum í öllum sjö atkvæðagreiðslunum voru 1127 sem samþykktu boðanir, 103 greiddu atkvæði gegn og 33 tóku ekki afstöðu. Á kjörskrá voru samtals 1710 einstaklingar. Heildarkjörsókn nam um 35 prósent og náði í öllum tilfellum 20 prósent lágmarks þátttökuþröskuldi.
Ánægð með þátttökuna og niðurstaðan kemur ekki á óvart
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir niðurstöðuna ekki koma á óvart en hún segist hafa fundið fyrir miklum stuðningi við aðgerðirnar síðustu daga.
„Við erum afar ánægð með þátttöku og framkvæmd atkvæðagreiðslunnar. Félagsmenn okkar eru á einu máli um að aðgerða sé þörf. Kröfur okkar eru sanngjarnar og félagsmenn eru tilbúnir að fylgja þeim eftir af krafti,“ er haft eftir Sólveigu Önnu í tilkynningunni.