Minnkað matarsóun um helming

Matvöruverslunin Krónan hefur dregið úr matarsóun í verslunum sínum um rúmlega helming með því að bjóða upp á vörur á síðasta söludag á lægra verði. Auk þess hefur verslunin dregið úr notkun pappa sem sparar um 300 tonn af pappa á ári.

Auglýsing
Matarsóun Krónan

Mat­vöru­versl­unin Krónan hefur náð draga úr mat­ar­sóun í versl­unum sínum um rúm­lega helm­ing á einu ári með því að að veita afslátt á vörur sem eru á síð­asta sölu­dag. 

Auk þess hefur versl­unin dregið úr sóun á pappa með því að hætta útsend­ingu á viku­legum fjöl­pósti til íslenskra heim­ila og með notkun fjöl­nota kassa fyrir inn­flutt græn­met­i í stað ­pappa­kassa. Með þessum breyt­ingum hef­ur versl­unin náð að spara hátt í 300 tonn af pappa. Þetta er hluti af þeim skrefum sem Krónan hefur stigið til að draga úr umhverf­is­spori sín­u. 

Draga úr sóun á plasti og pappa

Krónan hefur gert úttekt á þeim skrefum sem stigin voru í umhverf­is­málum innan versl­un­ar­innar í fyrra. Í frétta­til­kynn­ingu frá versl­un­inni segir að með átak­inu „Síð­asti séns- minnkum mat­ar­só­un“ sem hófst árið 2016 hjá versl­un­inni tókst Krón­unni í sam­ein­ingu með við­skipta­vinum sínum að minnka mat­ar­sóun í versl­un­un­um um rúm­lega helm­ing, eða 53 pró­sent, fyrsta árið.

Auk þess hefur Krónan stigið ýmis skref með það fyrir augum að minnka plast­notkun innan versl­ana. Þá tók versl­unin 500.000 plast­bakka úr umferð með því að færa allt hakk og ham­borg­ara Krón­unnar yfir í umhverf­is­vænni umbúðir úr pappa og end­ur­vinann­legu plast í stað frauð­plasts. Auk þess hætti versl­unin að bjóða upp á einnota frauð­plast­bolla á kaffi­stof­um ­starfs­fólks og spara þannig 60.000 bolla árlega. ­Jafn­framt hefur versl­unin náð 25 til 50 pró­sent orku­sparn­aði með því að skipta út kælum í versl­un­um, taka upp­ led ­lýs­ingu og CO2 kælikerfi. 

Auglýsing

 Í jan­úar síð­ast­liðnum setti Krónan upp sér­stakt afpökk­un­­ar­­borð fyrir við­­skipta­vini í tveimur versl­unum sín­um, í Lindum og úti á Granda. Við­­skipta­vinum gefst kostur á að skilja óþarfa umbúðir eftir í versl­unum til að minnka heim­il­is­ruslið. Versl­un­in  sér síðan til þess að umbúð­­irnar séu flokk­aðar og end­­ur­unnar á réttan há

Leita af vélum til að pakka inn kjöti í umhverf­is­vænni umbúðir

Gréta María Grét­ars­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Krón­unn­ar, segir að starfs­fólk Krón­unnar viti að hægt sé að hafa áhrif til góðs á sam­fé­lagið og telji það því mik­il­vægt að leggja sitt af mörk­um. Hún segir að versl­unin hafi nú þegar gert tölu­verðar breyt­ingar á versl­unum sínum og segir þau hvergi nærri hætt.  

„Krónan hefur ýmis áform um það sem við viljum gera á kom­andi mán­uðum og árum og leitum stöðugt nýrra leiða til að geta boðið við­skipta­vinum okk­ar  umhverf­is­vænni umbúð­ir. Þá erum við að leita að vélum til að pakka inn kjöti sem selt er í Krón­unni í umhverf­is­vænni umbúðir og höfum þegar náð árangri með allt hakk og ham­borg­ara Krón­unnar sem er komið í umhverf­is­vænni umbúðir en áður. Krónan telur mik­il­vægt að eiga öfl­ugt sam­starf við birgja okk­ar, með sam­tali okkar allra finnum við lausnir og leiðir til að minnka umhverf­is­spor Krón­unn­ar,“ er haft eftir Grétu Maríu í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent